Mannfall meðal Rússa meira en þeir vilja gefa upp Samúel Karl Ólason skrifar 22. mars 2017 12:29 Rússneskir hermenn að störfum í Aleppo. Vísir/AFP
Mannfall meðal hersveita Rússlands í Sýrlandi er rúmlega þrisvar sinnum hærra en þeir hafa gefið upp. Átján Rússar hafa fallið í átökum þar frá 29. janúar. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir fimm menn hafa fallið á þeim tíma. Þetta eru niðurstöður rannsóknar rannsakenda sem kallast Conflict Intelligence Team. Reuters fréttaveitan hefur staðfest niðurstöður þeirra. Flestir mennirnir voru ekki hermenn heldur störfuðu þeir sem verktakar undir rússneskum herforingjum. Samkvæmt Reuters hafa yfirvöld í Rússlandi ekki staðfest að verktakar séu að störfum í Sýrlandi. Einn þeirra sagði fjölskyldumeðlimum sínum að fjöldi slíkra verktaka í Sýrlandi hefði komið honum á óvart. Yfirvöld hafa ekki viljað tjá sig um málið við Reuters. Samkvæmt rannsókninni og Reuters er um að ræða fimm hermenn, en fall þeirra hefur verið tilkynnt af yfirvöldum Rússlands. Tveir hermenn eru sagðir hafa fallið til viðbótar auk ellefu verktaka. Minnst tíu þeirra létust í bardögum nærri Palmyra. Samkvæmt Reuters benda fregnir til þess að fleiri en átján Rússar hafi fallið í Sýrlandi frá lokum janúar. Það hafi hins vegar ekki verið staðfest.
Sýrland Mest lesið Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent „Því miður er verklagið þannig“ Innlent Langt í frá að málinu sé lokið Innlent Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni Innlent Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Innlent Hringvegurinn opinn á ný Innlent Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Ákærðir fyrir hryðjuverk gegn ísraelska sendiráðinu í Kaupmannahöfn Segja vopnahléið aftur í gildi eftir miklar árásir Fundu flöskuskeyti frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar Sjá meira