Fer úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu ekki fram í Evrópu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2016 09:15 Cristiano Ronaldo með Meistaradeildarbikarinn í Mílanó síðasta vor. Vísir/Getty
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í fótbolta gæti verið á leiðinni út úr Evrópu ef marka má orð nýja forseta evrópska knattspyrnusambandsins. Slóveninn Aleksander Ceferin tók við stjórnartaumunum í UEFA á dögunum og hann er strax farinn að hugsa um það að breyta til. Ceferin er opinn fyrir því að spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar í New York í Bandaríkjunum en evrópskur fótbolti er alltaf að verða vinsælli og vinsælli í Norður-Ameríku. „Þetta er kannski bara hugmynd á þessu stigi en við verðum að ræða þetta,“ sagði Aleksander Ceferin sem settist fyrst í forsetastól UEFA í síðasta mánuði. Allir 61 úrslitaleikur Evrópukeppni meistaraliða og Meistaradeildarinnar hafa farið fram í Evrópu en telur að það sé ekkert vandamál fyrir liðin og stuðningsmennina að ferðast til Bandaríkjanna. „Það væri ekki vandamál. Að ferðast frá Portúgal til Aserbaísjan er nánast það sama og að ferðast til New York. Þetta er samt Evrópukeppni þannig að við skulum hugsa betur um þetta,“ sagði Aleksander Ceferin. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu 2017 fer fram á Millennium Stadium í Cardiff í Wales og úrslitaleikurinn 2018 fer fram á Ólympíuleikvanginum í Kænugarði í Úkraínu. Það er ekki búið að ákveða það hvar úrslitaleikurinn verði árið 2019.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira