Leikmenn Norwich hafa skorað meira en leikmenn Barcelona og Bayern á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2016 13:30 Robbie Brady og Wes Hoolahan. Vísir/Getty
Nú eru aðeins sjö leiki eftir að Evrópumótinu í fótbolta í Frakklandi en átta liða úrslitin hefjast með leik Póllands og Portúgals í kvöld. Það er athyglisvert að skoða hve mörg mörk leikmenn ákveðna félagsliða hafa skorað á Evrópumótinu til þessa. Sky Sports tók þessa tölfræði saman. Stórlið eins og Real Madrid, Juventus og Atletico Madrid eru í efstu sætunum sem kemur ekki mikið á óvart. Það kemur hinsvegar mikið á óvart hvaða lið úr ensku úrvalsdeildinni er efst á þessum lista. Leikmenn Norwich City hafa nefnilega skorað þrjú mörk á EM í Frakklandi sem skilar félaginu upp í 4. til 8. sæti á fyrrnefndum lista. Norwich er þar með fyrir ofan lið eins og Arsenal (2 mörk), Manchester United (2 mörk), Liverpool (1 mark) og Chelsea (1 mark). Það er ekki bara að leikmenn Norwich hafi skilað félaginu fyrir ofan fyrrnefnd lið úr ensku deildinni þá hafa þeir einnig komið Norwich upp fyrir klúbba eins og Barcelona (2 mörk) og Bayern München (1 mark). Mörk Norwich manna á EM skoruðu þeir Robbie Brady (2 mörk) og Wes Hoolahan en þeir leika báðir með írska landsliðinu. Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar eru meira áberandi meðal efstu liða þegar kemur að stoðsendingum á EM. Leikmenn Arsenal, Chelsea og Manchester City hafa allir lagt upp fjögur mörk á mótinu. Eden Hazard hjá Chelsea (þrjár stoðsendingar), Kevin De Bruyne hjá Manchester City (þrjár stoðsendingar) og Aaron Ramsey hjá Arsenal (tvær stoðsendingar) eiga mestan þátt í því.Flest mörk leikmanna ákveðna félaga á EM 2016: 1. Real Madrid - 6 mörk 2. Juventus - 4 mörk 2. Atletico Madrid - 4 mörk 4. Internazionale - 3 mörk 4. Besiktas - 3 mörk 4. Fenerbahce - 3 mörk 4. Norwich City - 3 mörk 4. Bursaspor - 3 mörk 9. Arsenal - 2 mörk 9. Barcelona - 2 mörk 9. Dormund - 2 mörk 9. Everton - 2 mörk 9. Tottenham - 2 mörk 9. West Ham - 2 mörk 9. Genclerbirligi - 2 mörk 9. Swansea - 2 mörk 9. Hoffenheim - 2 mörk 9. Southampton - 2 mörkFlestar stoðsendingar leikmanna ákveðna félaga á EM 2016: 1. Arsenal - 4 stoðsendingar 1. Chelsea - 4 stoðsendingar 1. Manchester City - 4 stoðsendingar 4. Bayern München - 3 stoðsendingar 5. Juventus - 2 stoðsendingar 5. Internazionale - 2 stoðsendingar 5. Barcelona - 2 stoðsendingar 5. Dortmund - 2 stoðsendingar 5. Fiorentina - 2 stoðsendingar 5. Malmö FF - 2 stoðsendingar
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira