Hommabrandarar eru rosalega leiðinlegur og þrálátur vandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. maí 2016 06:00 María Helga Guðmundsdóttir, afrekskona í karate og þjálfari. Vísir/Anton Brink
María Helga Guðmundsdóttir, landsliðskona í karate og íþróttaþjálfari, kallar eftir opinni umræðu um stöðu hinsegin fólks í íþróttum á Íslandi. María Helga hélt fyrirlestur á opnum fundi ÍSÍ, KSÍ og Samtakanna ’78 í Laugardalnum í gær þar sem staða hinsegin fólks í íþróttum var rædd. „Ég hefði gjarnan viljað sjá fleiri andlit hér í dag. En Róm var ekki byggð á einum degi,“ segir María Helga en örfáir tugir gesta sóttu fyrirlesturinn og tóku þátt í umræðum að honum loknum. „Það gladdi mig þó að sjá hversu breiður hópur fólks var mættur. Hér var fólk úr öllum áttum og úr mismunandi greinum.“Slæm upplifun á Englandi María Helga er formaður karatefélagsins Þórshamars auk þess að vera afrekskona í íþróttinni. Sjálf er hún hinsegin íþróttakona sem varð lítið vör við fórdóma í sinni grein fyrr en hún var stödd í æfingaferð á Englandi. Þar var hún með fólki sem hefur náð langt á alþjóðavísu í íþróttinni – afreksfólk sem hún sjálf leit mikið upp til. Eina kvöldstund sat hún með þessu fólki þar sem byrjað var að segja brandara á kostnað hinsegin fólks og þá helst samkynhneigðra. María Helga sagði ekkert, enda upplifði hún sjálfa sig neðarlega í goggunarröðinni í þessum hópi eins og hún orðar það sjálf. „Á næsta borði voru unglingar, 14-15 ára, og ég sat og hugsaði um hvernig það hefði verið fyrir þau að hlusta á hóp af fyrirmyndum sínum tala á þennan hátt. Beita þessum húmor. Þau myndu fara heim og hugsa með sér að þau gætu aldrei komið út úr skápnum,“ segir María Helga um þessa reynslu. „Stærsta áfallið fyrir mig var að ég sat og sagði ekki neitt. Ég varð fyrir vonbrigðum með sjálfa mig í þessum aðstæðum. En það leiddi í ljós fyrir mig hvaða aðstæður geta skapast sem verður til þess að íþróttafólk heldur sig inni í skápnum.“Mynd/Karatesamband ÍslandsSkortur á fyrirmyndum Eftir þessa upplifun tók María Helga ákvörðun um að leggja sitt af mörkum til að auka umræðuna um hinsegin fólk í íþróttum. Í fyrirlestri sínum nefndi hún dæmi um hinsegin íþróttafólk sem ýmist hefur stigið fram eða verið í sviðsljósinu vegna óhefðbundinnar kynvitundar sinnar, kyneinkenna eða kynhneigðar. Það séu hins vegar allt of fá dæmi um það og eitt stærsta vandamálið sé skortur á fyrirmyndum. Vandi hinsegin fólks í íþróttum er afar margþættur og nær allt frá stöðu þeirra í búningsklefanum til þess hvernig það passar inn í hefðbundna flokkun á íþróttum karla og kvenna. Skiptingin er ekki alltaf svo einföld. María Helga segir að í dag sé mikilvægast að vera óhrædd við að tala um hinsegin fólk í íþróttum og að vera sérstaklega móttækileg fyrir ungu íþróttafólki sem er að uppgötva að það er sé hinsegin. Það sé ekki síst mikilvægt til að sporna við brottfalli.Mikilvægast að tala saman „Það mikilvægasta er að tala saman og rjúfa þessi tabú. Það kristallast svo vel í dæmi sem ég nefndi í fyrirlestrinum um þjálfarann sem nefndi kærustu leikmanns síns [í kvennaliði] sem systur hennar,“ segir hún. „Við eigum ekki að vera hrædd við að horfast í augu við tilvist hinsegin íþróttafólks – að það sé hættulegt að fá það í búningsklefann og raski einhverri dýnamík þar. Við verðum að vera ófeimin að spjalla um þetta. Það þarf ekki að vera margort samtal og stundum er nóg að vera móttækilegur fyrir umræðuefninu. Öllu máli skiptir að búa til betra samfélag í gegnum samtal.“ Vandamálin eru mörg en einna verst er að segja brandara á kostnað ákveðins hóps í samfélaginu, svo sem samkynhneigðra, að sögn Maríu Helgu. „Hommabrandarar eru rosalega leiðinlegur og þrálátur vandi. Það vill verða að tóli sem er notað til að þétta hópinn og búa til stemningu með því að grínast saman, í þeim tilgangi að búa til gott lið. En hver er kostnaðurinn?“ spyr María Helga.
Hinsegin Íþróttir Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City - Brighton | Stórleikur í Manchester-borg Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Grótta í sambandi við Davíð Smára Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ „Hans besti leikur“ 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Dagskráin: Doc Zone en fyrst stórleikur Chelsea og Man. Utd Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Sjá meira