Ragnheiður Elín tekjuhæst á Alþingi Bjarki Ármannsson skrifar 25. júlí 2015 10:11 Ragnheiður Elín er tekjuhæst Alþingismanna og ráðherra samkvæmt nýju tekjublaði Frjálsrar verslunar. Vísir/GVA
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er tekjuhæst Alþingismanna og ráðherra samkvæmt nýju tekjublaði Frjálsrar verslunar. Ragnheiður er þar skráð með rúmlega 1,6 milljónir króna í mánaðarlaun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, fylgir næst á eftir. Hann er sagður með tæplega 1,6 milljónir króna í mánaðarlaun. Næstu sæti listans skipa þau Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, með tæplega 1,4 milljónir á mánuði, Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, með rúmlega 1,3 milljónir og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, með rúmlega 1,2 milljónir. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, var tekjuhæst Alþingismanna í fyrra með rúmlega 1,5 milljónir en er nú í því tólfta með rúmlega milljón á mánuði. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er í tíunda sæti með tæplega 1,2 milljónir á mánuði. Listi Frjálsrar verslunar er byggður á útsvarsskyldum tekjum á árinu 2014 og þurfa þær því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Í einhverjum tilvikum kann skattstjóri að hafa áætlað tekjur.
Alþingi Skattar og tollar Tekjur Tengdar fréttir Kári tekjuhæstur á árinu Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er með rúmlega 29 milljónir króna í mánaðarlaun samkvæmt nýjasta tekjublaði Frjálsar verslunar. 25. júlí 2015 09:44 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Sjá meira
Kári tekjuhæstur á árinu Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er með rúmlega 29 milljónir króna í mánaðarlaun samkvæmt nýjasta tekjublaði Frjálsar verslunar. 25. júlí 2015 09:44