Garðar: Fann um leið að boltinn væri á leið í markið Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. júlí 2015 18:46 Garðar er kominn með þrjú mörk í Pepsi-deildinni í sumar. vísir/pjetur
Garðar Gunnlaugsson var hetja Skagamanna gegn Stjörnunni í dag, en hann kom inn af bekknum og skoraði jöfnunarmarkið, 1-1. "Við höfðum trú á þessu allan tímann. Þetta var vel gert hjá okkur," sagði Garðar glaðbeittur við Vísi eftir leikinn. Stjarnan var betri aðilinn í dag en Skagamenn gáfust ekki upp og uppskáru jöfnunarmark þó heppnin hafi verið með þeim þegar Halldór Orri skaut í stöngina úr vítaspyrnu. "Þeir fengu sín færi en við börðumst og hættum aldrei. Það var mikill kraftur í okkur og karakter að koma til baka," sagði Garðar. Markahrókurinn vissi að boltinn væri á leiðinni í netið um leið og hann skaut, en hann fékk sendingu í gegnum vörnina frá Jóni Vilhelm Áksyni og afgreiddi færið sitt vel. "Ég fann það bara þegar ég hitti hann að ég var að fara að skora. Þetta er eins og í golfinu; maður veit að höggið er gott um leið og maður slær," sagði hann. Garðar er að koma til baka úr meiðslum en hvenær verður hann klár í að spila 90 mínútur? "Vonandi bara í næsta leik. Gulli verður að taka ákvörðun um það samt," sagði Garðar Gunnlaugsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn Þurftu að hætta keppni til að tryggja öryggi keppenda Sport Laugardalsvöllur tekur lit Fótbolti Mesta rúst í sögu NBA Körfubolti „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Enski boltinn Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Dagur Örn sagður á leið til FH Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 3-0| Valur kláraði dæmið í síðari hálfleik Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 1-2 | Ótrúleg endurkoma Garðbæinga Uppgjörið: KR - ÍA 5-0 | Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við „Ég á nokkuð mörg mörk miðað við hafsent“ Uppgjörið: FH - FHL | Miðvörðurinn Arna skoraði tvö og Maya gerði út af við leikinn Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 0-1 | Höskuldur hetja Blika annan leikinn í röð Uppgjörið: KA - FH 3-2 | Fyrsti sigur KA en FH-ingar enn á botninum „Hún er klárlega skemmtikraftur“ Duke framherjinn kominn heim til Íslands og framlengdi við FH „Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Gunnar Jarl reif flautuna af hillunni Sjá meira