Ronaldo skoraði og Real vann | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2015 17:30 Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo og Marcelo skoruðu mörk Real Madrid er liðið vann 2-0 sigur á þýska liðinu Schalke og fór langt með að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Síðari leikur liðanna fer fram í spænsku höfuðborginnni þann 10. mars og ljóst að það verður erfitt verkefni fyrir þýska liðið. Ronaldo hafði ekki skorað í þremur leikjum í röð fyrir Real Madrid og höfðu því margir áhyggjur af meintri markaþurrð kappans sem skorar venjulega í hverjum einasta leik - eða svo gott sem. Sjálfsagt var því einhverjum létt þegar hann skallaði fyrirgjöf Dani Carvajal í markið á 27. mínútu og kom Madrídingum yfir. Aðeins nokkrum mínútum síðar urðu heimamenn fyrir áfalli er Klaas-Jan Huntelaar varð að fara af velli vegna meiðsla. Schalke skapaði sér þó nokkur færi í síðari hálfleik en það langbesta fékk varamaðurinn Felix Platte, sem kom inn á fyrir Huntelaar, en laglegt skot hans hafnaði í slánni. En gestirnir frá Spáni gerðu út um leikinn stuttu síðar er Brasilíumaðurinn Marcelo skoraði annað mark Real Madrid með stórglæsilegu skoti eftir sendingu Ronaldo. Niðurstaðan því 2-0 sigur og má sjá mörkin úr leiknum hér fyrir neðan.Cristiano Ronaldo kom Real Madrid með skallamarki í fyrri hálfleik: Real Madrid komst 2-0 yfir með stórglæsilegu skoti Marcelo á 79. mínútu:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira