Geir sér ekki eftir því að hafa ráðið Ólaf og kosið Blatter 10. febrúar 2012 17:17 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í ítarlegu viðtali hjá íþróttafréttamönnunum Henry Birgi Gunnarssyni og Eiríki Stefáni Ásgeirssyni í íþróttaþættinum á X-inu 977 í morgun. Var farið um víðan völl í viðtalinu og meðal annars rætt um ársþingið sem fer fram um helgina, leyfiskerfið, áfengisneyslu á Laugardalsvelli, landsliðsþjálfaramál og forsetakosningar hjá FIFA svo fátt eitt sé nefnt. "Ég verð að sitja uppi með það að ég hélt trúnaði við Ólaf og hélt hann vera rétta manninn í fjögur ár. Stigin töluðu svo sínu máli," sagði Geir í þættinum um Ólaf Jóhannesson, fráfarandi landsliðsþjálfara, en sér hann eftir því að hafa ráðið Ólaf á sínum tíma? "Nei, ég sé ekki eftir því. Ég lít ekki á þessa ráðningu sem mistök. Ég sé ekki eftir þessum tíma." KSÍ var á meðal fjölda þjóða sem ákvað að kjósa Sepp Blatter aftur sem forseta FIFA. Óhætt er að segja að Blatter sé afar umdeildur maður. Geir sagði á sínum tíma að hann fyldi "foringja vorum Platini" er hann ákvað að kjósa Blatter. Gerði hann það með hreinni samvisku? "Ég gerði það vegna þess að ég hef ekki séð nein haldbær sönnunargögn um það að Blatter sjálfur hafi staðið fyrir einhverju misjöfnu. Blatter er af gamla skólanum og stjórnar þessu með harðri hendi. Ég geri mér grein fyrir því," sagði Geir sem gerir sér samt grein fyrir því að ímynd FIFA hafði beðið hnekki. "Ímynd FIFA er verulega löskuð og ég geri mér grein fyrir því." Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Forsetakosningar 2012 Pepsi Max-deild karla Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Sjá meira