Sport

Dag­skráin í dag: Heil um­ferð í Bestu karla, enski boltinn og ögur­stund í Njarð­vík

Íþróttaunnendur fá sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð á sportrásum Sýnar í dag. Fylgst verður með öllu því helsta í Doc Zone og þá fer heil umferð fram í Bestu deild karla. Fylgst verður með gangi mála í þeim leikjum í Subway messunni og þeir verða svo gerðir upp í Stúkunni. Þá fer fjórði úrslitaleikur Njarðvíkur og Hauka í Bónus deild kvenna fram og úrslitin ráðast á PGA-meistaramótinu í golfi.

Sport

Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var að vonum ánægður eftir að hans menn unnu Chelsea, 1-0, í bikarúrslitaleiknum á Englandi í dag. Eftir leik gaf hann í skyn að hann yrði áfram með City-liðið.

Enski boltinn

„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugar­dalnum“

„Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Íslenski boltinn

Strákarnir hans Dags unnu Svía

Króatía, silfurlið HM 2025 og bronslið EM 2026, vann Svíþjóð, 35-31, í seinni vináttulandsleik þjóðanna í handbolta karla í dag. Leikið var í Varazdin í Króatíu.

Handbolti

Bríet treður upp á stór­leiknum

Poppstjarnan Bríet mun koma fram í hálfleik á leik Þróttar og Breiðabliks í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna síðar í dag. Ásamt hálfleikssýningunni mun Þróttur spila í og selja sérstakar treyjur úr smiðju söngkonunnar.

Íslenski boltinn

„Mourinho er númer eitt“

Þjálfarinn Álvaro Arbeloa ræddi við blaðamenn fyrir leik Real Madrid gegn Sevilla en aðeins tvö nöfn bar á góma á blaðamannafundinum, José Mourinho og Kylian Mbappé.

Fótbolti

Öðrum hring Reykjanesmótsins af­lýst

Í dag átti annar hringur Reykjanesmóts Golfklúbbs Suðurnesja og Golfklúbbs Sandgerðis að vera leikinn á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Ákvörðun hefur verið tekin að aflýsa hringnum vegna veðurs. Lokahringur mótsins verður á Hólmsvelli á morgun og mótið stytt í 36 holur.

Sport

„Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“

„Þetta er lífið í ferðatösku, eins og hjá atvinnumönnum. En maður velur þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt,“ segir Ragnhildur Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur landsins, sem verður að vanda á faraldsfæti í sumar.

Golf