Sport

Hvar á maður að byrja?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Manchester City var eðlilega til umræðu í þætti dagsins.
Manchester City var eðlilega til umræðu í þætti dagsins. Vísir/Getty

Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum.

Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það minnsta allt annað að sjá til liðsins með hann innanborðs í gær.

Hvar á maður svo að byrja á þessu Manchester City-máli? Það eru ævintýralega margir vinklar á því.

Valur Páll Eiríksson, Sindri Sverrisson og Smári Jökull Jónsson fóru yfir málin í Besta sætinu.

Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Besta sætið er daglegur þáttur íþróttadeildar Sýnar þar sem farið er í öll helstu íþróttamál líðandi stundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×