Stuðlagil

Fréttamynd

„Mjög margar perlur á Ís­landi sem verða alltaf vara­samar“

Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. 

Innlent
Fréttamynd

Erfiðast að horfa upp á mann­eskju deyja og geta ekkert gert

Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána.

Innlent
Fréttamynd

„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“

Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á.

Innlent
Fréttamynd

Leita á­fram í fyrra­málið

Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu

Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil

Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Er­lendur ferða­maður fannst látinn við Stuðlagil

Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagili við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Hún var þá látin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. 

Innlent