Verslun

Fréttamynd

„Skapaði mikla ringul­reið hjá okkur og við erum hrædd“

Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot. 

Innlent
Fréttamynd

Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úr­skurð um greiðsluskjól

Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á lög­bann á Isavia

Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Húrra dregur saman seglin

Eigendur tískufataverslunarinnar Húrra Reykjavíkur hafa ákveðið að loka útibúum búðarinnar í bæði Kringlunni og Smáralind til að einbeita sér að versluninni á Hverfisgötu. Stutt er síðan útibúi verslunarinnar í Leifsstöð var lokað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opna Lindex þar sem Úti­líf var

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafna á­sökunum um hönnunarstuld

Fataframleiðandinn Icewear segist hafna með öllu ásökunum um að prjónauppskrift sem fyrirtækið selur sé eftirherma af hönnun íslenskrar prjónakonu. Prjónahönnun byggi oft á sameiginlegri hefð og þannig geti líkindi komið fram án þess að um eftirhermu sé að ræða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

Síminn búinn að glamra í fjóra ára­tugi

Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskars­dóttir og Víglundur Jón Gunnars­son sett mark á bæjar­braginn í Nes­kaups­stað með fjöl­breyti­legum og persónu­legum verslunar­rekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í bygginga­vöru­versluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí.

Innlent
Fréttamynd

Kulnun, kostnaður og gervi­greind: Hvað gera stjórn­endur nú?

Hvað geta stjórnendur og millistjórnendur í verslunar- og þjónustugreinum gert til að nýta tækni af skynsemi, efla mannauðinn og skapa sjálfbæran og árangursríkan rekstur? Þessir þættir og fleiri til verða umfjöllunarefni ráðstefnunnar UPPBROT sem Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) halda árlega og verður að þessu sinni haldin 12. mars á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll milli kl. 13 og 17.

Samstarf
Fréttamynd

Sönnuðu ekki full­yrðingar um lækninga­mátt og fá háa sekt

ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.

Neytendur
Fréttamynd

Aftur brotist inn í Húrra Reykja­vík

Í nótt var brotist inn í verslun Húrra Reykjavík á Hverfisgötu, í þriðja skipti á rúmri viku. Eigandann grunar að um sama mann sé að ræða. Lögreglan segir málið til rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Tvö inn­brot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón

Á rúmri viku hefur tvisvar sinnum verið brotist inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu, síðast í nótt. Þýfið er virði hundraða þúsunda króna. Eigandinn segir málið hræðilegt og telur það vera dæmi um fjölgun innbrota. 

Innlent
Fréttamynd

Fjölga verslunum í Danaveldinu

66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum.

Neytendur
Fréttamynd

Alexandra Helga lokar Míu

Alexandra Helga Ívarsdóttur, athafnakona og eiginkona Gylfa Sigurðssonar, hefur ákveðið að loka barnavöruversluninni Míu. Hún segir reksturinn hafa verið gefandi en krefjandi og því snúi hún sér að öðrum verkefnum.

Lífið
Fréttamynd

Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR

Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hérlendis. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki SPAR. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og SPAR.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vínbúðinni í Smára­lind lokað fyrir sumarið

Vínbúð ÁTVR í Smáralind verður lokað fyrir sumarið. Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri segir sölu hafa verið undir væntingum og því verði versluninni lokað. Starfsmönnum verður boðin vinna í öðrum vínbúðum og því verður engum sagt upp.

Viðskipti innlent