Íslendingar erlendis

Fréttamynd

Íslendingaslagur endaði jafn í Dan­mörku

Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru í byrjunarliði Lyngby sem mætti Mikael Anderson og félögum í dönsku úrvalsdeildinni. Leikurinn endaði jafn eftir mikla dramatík í lok leiksins.

Fótbolti
Fréttamynd

Kol­beinn og fé­lagar komust á­fram þrátt fyrir tvö vítaklúður

Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði IFK Göteborg þegar liðið vann viðureign sína gegn FCI Levadia frá Eistlandi í framlengdum leik í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Sænska liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum í venjulegum leiktíma en náði að skora tvö mörk í framlengingu til að tryggja sigurinn.

Fótbolti
Fréttamynd

„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“

„Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag,“ segir Sædís Lea Lúðvíksdóttir sem giftist ástinni sinni Henriki Bjarnasyni við draumkennda athöfn í kastala í Frakklandi á dögunum. Hjónin eru sammála um að þetta hafi án alls efa verið skemmtilegasta upplifun lífs þeirra.

Lífið
Fréttamynd

Vann með fimm poppstjörnum á einni viku

„Stundum held ég að ég sé bara að fara út í venjulegan vinnudag en svo endar kvöldið allt öðruvísi en ég bjóst við,“ segir hin 24 ára gamla Elísabet Guðmundsdóttir sem er búsett í New York og elskar ævintýri borgarinnar. Elísabet hefur búið erlendis stóran hluta ævi sinnar en flutti nítján ára gömul til New York til að stunda nám við hinn virta listaháskóla Parsons.

Lífið
Fréttamynd

Elegans í hæstu hæðum í fimm­tugs­af­mæli ársins

Rithöfundurinn Ragnar Jónasson varð fimmtugur síðastliðinn mánudag og það er vægt til orða tekið að segja að hann hafi fagnað tímamótunum með pompi og prakt. Eftir veisluhöld í Hvammsvík helgina áður fagnaði Ragnar með fjölbreyttum hópi vina á glæsihótelinu Soho Farm House í Bretlandi á afmælisdaginn sjálfan.

Lífið
Fréttamynd

Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð

Skógareldar sem geisað hafa vestur af Madrídarborg á Spáni hafa brennt um 750 ferkílómetra svæði í Sierra Oeste-fjallgarðinum. Tugum þúsunda hefur verið gert að yfirgefa heimili sín, þeirra á meðal Hildur Kolbrún Andrésdóttir sem hefur varið helginni á fjöldahjálparstöð.

Innlent
Fréttamynd

Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fal­legt, fjallið er allt brunnið“

Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Fór snemma út af í jafn­tefli við nýliðana

Brøndby og Midtjylland gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Í dag fer fram fyrsta umferð deildarinnar á þessu tímabili og þurfti Hafrún Rakel Halldórsdóttir að fara út af í hálfleik.

Fótbolti
Fréttamynd

Víkingarnir halda toppsætinu

Viking náði að halda efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Lilleström. Bodö/Glimt átti einnig leik en aðeins eitt stig skilur liðin að.

Fótbolti
Fréttamynd

Hearts sá ekki til sólar í Austur­ríki

Skoska liðið Hearts mætti Sturm Graz í undankeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem Hearts sáu aldrei til sólar. Sturm Graz var með yfirhöndina allan leikinn og það bíður Hearts erfitt verkefni í seinni leiknum sem verður spilaður í Skotlandi.

Fótbolti