Viðreisn

Fréttamynd

Breytingar hjá Við­reisn eftir af­sögn Guð­brands

Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin sem lögfræðingur þingflokksins. Ráðist var í breytingarnar í kjölfar afsagnar Guðbrandar Einarssonar sem þingmaður.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja turna tal í Reykja­vík

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.

Innlent
Fréttamynd

Tók Indriða í pontu og upp­skar hláturs­kast í þing­sal

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar.

Lífið
Fréttamynd

Innviðasjóður Reykja­víkur: Ný nálgun Við­reisnar

Við leggjum í dag fram tillögu í borgarstjórn um að greina og útfæra Innviðasjóð Reykjavíkur, nýja og markvissa leið til að fjármagna uppbyggingu leikskóla, skóla og annarra grunninnviða borgarinnar til lengri tíma. Hugmyndin er einföld. Að byggja upp gagnsæja og ábyrgari umgjörð fyrir langtímafjárfestingar í innviðum fyrir borgarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Litlar breytingar á fylgi flokkanna

Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokkanna milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Gallup. Breytingarnar eru á bilinu 0,1 til 0,8 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og Miðflokkurinn næststærstur. Meirihluti styður störf ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Spennt að mæta fyrr­verandi yfir­manni í kapp­ræðum

„Það þarf að létta á kerfinu. Við þurfum að átta okkur á því fyrir hvern við erum að vinna, hvert er hlutverkið? Er þetta nauðsynlegt verkefni? Og svo framvegis. Það þarf klárlega að fara í einhverja endurskoðun á hvernig kerfið er. Þarna er ég ekki að tala um þjónustuna inni í skólunum og frístundarheimilunum. Ég er að tala um þessa miðlægu stjórnsýslu. Við verðum að skýra hana betur.“

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan hafi verið Við­reisn til sóma

Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir baráttuna fyrir kosningar til oddvitasætis Viðreisnar í Reykjavík hafa verið Viðreisn til sóma. Hann hafnaði þar í öðru sæti á eftir Björgu Magnúsdóttur.

Innlent
Fréttamynd

„Lúxus­vanda­mál“ að velja og hafna á listann

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík segir næsta mál á dagskrá að stilla upp sigurstranglegum lista. Hún segir öflugt fólk hafa boðið sig fram gegn sér í oddvitaslagnum og að það verði skoðað af alvöru hvort ekki verði hægt að fá eitthvað þeirra til að taka sæti.

Innlent
Fréttamynd

Björg sökuð um brot á kosningareglum Við­reisnar

Björg Magnúsdóttir, einn fjögurra frambjóðenda í leiðtogaprófkjöri Viðreisnar í Reykjavík, er sökuð um að hafa brotið kosningareglur flokksins með því að hafa samband við flokksmenn sem væru bannmerktir í gagnagrunni flokksins og ekki mætti hafa samband við. Um hugsanleg brot á persónuvernd er að ræða, að sögn kjörstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Fjórðungur kosið í próf­kjöri Við­reisnar

Fjórðungur Viðreisnarmanna á kjörskrá hefur þegar greitt atkvæði í prófkjöri flokksins í Reykjavík í dag, að sögn formanns kjörstjórnar. Fjórir sækjast eftir því að vera borgarstjóraefni Viðreisnar.

Innlent
Fréttamynd

Bærinn er fólkið

Um samtal, traust og framtíð HafnarfjarðarHafnarfjörður er einstakur bær. Hér mætast saga og framtíð, náttúra og bæjarbragur. Líkt og önnur sveitarfélög stöndum við frammi fyrir krefjandi verkefnum. Íbúar kalla eftir lausnum í húsnæðismálum, bættri þjónustu, ábyrgri fjármálastjórn og skýrri framtíðarsýn um hvernig bæjarfélagið eigi að þróast – fyrir börnin okkar, eldri borgara og alla þar á mill

Skoðun
Fréttamynd

Ó­birt svör og starfs­lokin tekin fyrir

Frambjóðendur til oddvita Viðreisnar í Reykjavíkurborg tókust á í Pallborðinu í dag. Farið var yfir óbirta spurningu í skoðanakönnun og Airbnb-mál fyrrverandi bæjarstjóra. Enginn frambjóðandi gat valið hvern hann myndi velja í oddvitasætið fyrir utan sig sjálfan.

Innlent
Fréttamynd

Leið­togi með reynslu, kjark og mann­lega nálgun

Ég átti þess kost að vinna náið með Róberti Ragnarssyni tvö kjörtímabil í Grindavík. Ég tók meðal annars þátt í að ráða hann sem bæjarstjóra til starfa 2010 og síðar að endurráða hann 2014. Sú reynsla gefur mér sterkan grundvöll til að leggja orð í belg og lýsa þeirri forystu og fagmennsku sem Róbert hefur sýnt í störfum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Daði Már kennir olíu­fé­lögunum um

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrir hverja eru leik­skólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem okkar minnstu og mikilvægustu samborgarar taka sín fyrstu skref í að verða hluti af samfélaginu. Þar er félagsfærni, málþroski og öryggi þeirra byggt upp undir vökulu auga starfsfólks sem hefur atvinnu af því að stuðla að öryggi og vellíðan barna í námi og leik. Leikskólar eru líka grundvallarforsenda þess að foreldrar ungra barna geti tekið þátt í atvinnulífinu.

Skoðun
Fréttamynd

Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi?

Frambjóðendur til oddvitasætis Viðreisnar í Reykjavík gerðu sitt besta til að halda dyrum opnum þegar þau voru spurð í kappræðum flokksins í kvöld hvort þau gætu frekar hugsað sér samstarf með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni. Oddvitar mættust í kappræðum í Austurbæjarbíó í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Lífið er soðin ýsa

Það er fáránlega gaman að gera sér glaðan dag, breyta til og bregða út af vananum. Staðreyndin er hins vegar sú að stærsti hluti lífsins fellur í flokk sem nefnist blákaldur hversdagsleiki. Einnig nefndur soðin ýsa.

Skoðun
Fréttamynd

Reynsla og létt­leiki – Aðal­steinn fyrir Reykja­vík

Upptakturinn að sveitarstjórnarkosningum í vor er hafinn og flokkarnir í óða önn við að manna sína lista, hvort heldur í gegnum prófkjör, flokksval eða uppstillingu. Viðreisn í Reykjavík stendur frammi fyrir vali á oddvita lista næstu helgi. Svokallað leiðtogaprófkjör. Hvaða eiginleika þarf leiðtogi að hafa?

Skoðun
Fréttamynd

Gullhúðað af­nám jafnlaunavottunar

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda er ekki einn þeirra sem hrópar fyrirvaralaust húrra vegna boðaðs afnáms jafnlaunavottunar. Hann segir afnámið gullhúðað.

Innlent
Fréttamynd

Arnar Grétars­son í stjórn­málin

Arnar Grétarsson, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu og knattspyrnuþjálfari hér  heima síðustu ár, er komin í pólitíkina. Hann gefur kost á sér fyrir Viðreisn í komandi sveitarstjórnarkosningum í Kópavogi.

Innlent