Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Franski sjóherinn stöðvaði olíuflutningaskip sem talið er hluti af svonefndum skuggaflota Rússa á Miðjarðarhafi í dag. Þetta er annað olíuflutningaskipið sem Frakkar stöðva á þessum forsendum á þessu ári. Erlent 20.3.2026 15:29
Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Sveitarstjórnarkosningar í franska smáþorpinu Arcis-sur-Aube hafa vakið heimsathygli að undanförnu, fyrir þær sakir að frambjóðendurnir bera nöfn sem hljóma kunnuglega. Erlent 19.3.2026 16:42
Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn. Lífið 16.3.2026 19:21
Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Sagt er að Rothschild-fjölskyldan fjármagni á víxl fasískar og kommúnískar byltingar, stýri veðrinu með geimleiserum, dreifi pestum um jarðarkringluna og jafnvel að hún hafi einkaleyfi á Covid-19. Lífið 2. mars 2026 15:20
Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna. Erlent 1. mars 2026 22:31
Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Sænsk stjórnvöld telja að dróni sem sást á sveimi á Eyrarsundi þegar franskt flugmóðurskip lá við festar í Malmö í vikunni hafi verið rússneskur. Sænski herinn truflaði drónann áður en hann hvarf sjónum. Erlent 27. febrúar 2026 14:42
Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Listasagnfræðingurinn Christophe Leribault verður nýr forstjóri listasafnsins Louvre í París í Frakklandi. Hann hefur síðustu ár verið yfirmaður Versala-hallar. Erlent 25. febrúar 2026 11:00
Andrew á Louvre Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi. Menning 23. febrúar 2026 14:36
Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ Emmanuel Macron, forseti Frakklands, gefur lítið fyrir fullyrðingar forsvarsmanna samfélagsmiðla og tæknifyrirtækja um þeir berjist fyrir tjáningarfrelsi. Hann varar við áhrifum ógagnsæs algríms samfélagsmiðla á lýðræðið. Erlent 19. febrúar 2026 09:25
Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Lögreglan í frönsku höfuðborginni París skaut mann til bana við Sigurbogann í kvöld þar sem hann er sagður hafa ógnað lögreglumönnum. Erlent 13. febrúar 2026 21:46
Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Franska lögreglan hefur sent frá sér alþjóðlega beiðni til mögulegra fórnarlamba og vitna að gefa sig fram vegna rannsóknar þeirra á máli 79 ára gamals fyrrverandi kennara sem er sakaður um að hafa nauðgað og beitt 89 börn kynferðisofbeldi í fimm heimsálfum. Brot mannsins eru sögð hafa átt sér stað allt frá sjöunda áratugnum til ársins 2022. Fjallað er um málið á vef Guardian. Erlent 11. febrúar 2026 23:03
Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Þegar lögregluþjónn tilkynnti Gisèle Pelicot að 53 menn hefðu nauðgað henni, með aðstoð eiginmanns hennar, segist hún hafa farið í sjokk. Henni voru í kjölfarið sýndar myndir og myndbönd af mönnum nauðga henni, eftir að eiginmaður hennar hafði byrlað henni ólyfjan. Erlent 11. febrúar 2026 12:53
Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir tíma til kominn að Evrópa fari að standa í lappirnar á alþjóðasviðinu. Að ráðamenn þar beiti sér í takt við vald heimsálfunnar. Erlent 10. febrúar 2026 16:10
Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins. Erlent 3. febrúar 2026 12:04
Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París París iðar af hátísku sem aldrei fyrr og súperstjörnur spóka sig um götur borgarinnar. Tískuvikan er farin á fullt og orkan er engri lík. Tíska og hönnun 29. janúar 2026 09:41
Svíar líta til kjarnorkuvopna Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna. Erlent 27. janúar 2026 22:50
Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Franska þingið samþykkti í nótt fruamvarp sem bannar símnotkun í skólum og alla samfélagsmiðlanotkun barna undir fimmtán ára aldri. Erlent 27. janúar 2026 07:48
Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu Íris E. Gísladóttir og Mathieu Grettir Skúlason eru liðlega þrítug og dvelja þessi misserin í París ásamt börnum sínum tveimur, þeim Evu 13 ára og Eric 4 ára. Ekki bara af því að þeim finnst frönsku vínin svo ljúffeng eða croissanturnar svo kræsilegar heldur var það samdóma niðurstaða fjölskyldunnar að í París gætu þau lifað betra lífi sem frumkvöðlar en á Íslandi. Lífið 26. janúar 2026 20:02
Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu Flug tveggja véla, annars vegar franskrar eldsneytisvélar og hins vegar danskrar herþotu, vakti athygli einhverra landsmanna um miðjan dag í gær. Innlent 25. janúar 2026 13:03
Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður útilokar ekki að hann muni einn daginn skella sér í stjórnmálin og fara í framboð. Myndi hann skipta um starfsvettvang eða færa sig um set gæti valið þó einnig verið allt annað en pólitíkin. Hann myndi til að mynda hafa áhuga á að gerast rithöfundur í franskri sveit. Lífið 24. janúar 2026 13:38
Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Franska kvikmyndahátíðin verður haldin í 26. sinn í Bíó Paradís frá 23. janúar til 1. febrúar. Á dagskrá eru tíu franskar kvikmyndir, nýjar í bland við samtímaklassík. Franska leikkonan Isabelle Huppert verður meðal gesta. Menning 23. janúar 2026 17:11
Grinch siglt til hafnar í Marseille Franskir saksóknarar eru að rannsaka olíuflutningaskip sem stöðvað var á Miðjarðarhafinu í gær. Skipið, sem ber nafnið Grinch er talið tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ sem notaður er til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Áhlaupið í gær var í fyrsta sinn Evrópuþjóð stöðvar skip á siglingu með þessum hætti og tekur stjórn á því. Erlent 23. janúar 2026 16:23
Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Franskir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra Skuggaflota Rússlands. Skipið var undan ströndum Spánar á Miðjarðarhafinu þegar hermennirnir fóru um borð en það var vegna gruns um að skipið væri ekki skráð löglega og mun sá grunur hafa reynst réttur. Erlent 22. janúar 2026 15:56
Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Þremur her- og varðskipum hefur verið siglt í höfn í Reykjavík í dag. Tvö skipanna eru frá Danmörku og það þriðja frá Frakklandi. Innlent 22. janúar 2026 14:02