Leita enn að Renoir-þjófunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. september 2026 07:12 Safnið er á síðasta heimili Renoir. Getty Enn leitar lögreglan að tveimur þjófum sem brutust inn í Renoir-safn í suðurhluta Frakklands og höfðu með sér tvö listaverk eftir málarann. Leitað er um allt landið.
Í gærmorgun, rétt fyrir klukkan sex á staðartíma, fór innbrotskerfið í gang í Renoir-safninu í bænum Cagnes-sur-Mer sem er rétt fyrir utan Nice í Frakklandi. Þjófarnir voru á bak og burt þegar lögreglan mætti á staðinn um fimm mínútum síðar. Á öryggismyndavélum sáust þjófarnir tveir hafa á brott með sér fjögur listaverk en í hamaganginum urðu tvö þeirra eftir. Fyrst um sinn var talið að þeir hefðu náð að stela þremur verkum en annað fannst seinna um daginn. Málverkin fundust bæði í garði safnsins. Bryan Masson, bæjarstjóri Cagnes-sur-Mer, sagði samkvæmt France24 að þjófarnir virtust vel undirbúnir og vel upplýstir um húsnæðið. Safnið er á síðasta heimili Renoir sem bjó þar til hann lést 78 ára árið 1919. Þeir brutu glugga til að komast inn á safnið og notuðu vélsög til að skera rammana af verkunum. Verkunum sem var stolið voru Madame Colonna Romano og Jenue femme au puits. Verkin sem skilin voru eftir voru Madame Pichon og Coco lisant en öll fjögur málverkin voru talin níu milljóna evra virði, sem eru rúmir 1,2 milljarðar íslenskra króna. Á safninu mátti finna níu málverk eftir Renoir auk högglistaverka og muni sem voru í eigu málarans, svo sem trönur og hjólastól.
Frakkland Myndlist Erlend sakamál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira