Síðustu naglarnir skulu af götum Reykjavíkur í næstu viku Fjögur af hverjum tíu ökutækjum í Reykjavík voru á nagladekkjum í mars. Þetta kom í ljós við talningu á vegum borgarinnar í síðasta mánuði. Innlent 7. apríl 2022 13:48
Skattastefna Reykjavíkurborgar er partur af atvinnustefnunni Ný atvinnu- og nýsköpunarstefna Reykjavíkurborgar var lögð fyrir borgarstjórn fyrr í vikunni. Í henni eru ýmsir góðir punktar. Stefnan er m.a. byggð á niðurstöðum samráðs við fyrirtæki í borginni og samtök þeirra. Á þeim fundum komst til skila – og rataði meira að segja inn í plaggið – að tortryggni og vantraust ríkir á milli atvinnulífs og borgaryfirvalda. Skoðun 7. apríl 2022 12:30
Besta-spáin 2022: Lífið eftir Sævar og Smit Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Leikni 9. sæti Bestu deildar karla í sumar. Íslenski boltinn 7. apríl 2022 10:01
Kolbrún leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi og sálfræðingur, skipar fyrsta sætið á lista Flokks fólksins í Reykjavík vegna komandi borgarstjórnarkosninga sem fram fara 14. maí næstkomandi. Innlent 7. apríl 2022 09:22
Á níunda hundrað viðburða í Hörpu í fyrra Alls voru 867 viðburðir haldnir í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í fyrra þrátt fyrir heimsfaraldur kórónuveiru. Tekjutap samstæðunnar nam 162,2 milljónum króna, um 20 milljónum minna en árið á undan. Viðskipti innlent 6. apríl 2022 20:56
Fjölmenningarsinnaður Framsóknarflokkur lykilspilið í borginni í vor Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík segir að Framsókn verði lykilspilið fyrir þá kjósendur sem vilji breytingar í borginni í vor. Honum þótti leitt að heyra af ummælum formanns flokksins en hann segir að sá sé búinn að axla ábyrgð. Innlent 6. apríl 2022 19:32
Viðreisn hefur ekki áhyggjur Oddviti Viðreisnar í Reykjavík kveðst ekki hafa áhyggjur af löku gengi flokksins í könnun Maskínu fyrir fréttastofu í gær. Öllu heldur sé þetta hvatning til að spila góða sókn í kosningabaráttunni fram undan. Innlent 6. apríl 2022 12:04
Lærum af aðlögun náms í heimsfaraldri Mennt er máttur er máltæki sem oft er notað þegar rætt er um menntun. Ýmsir sáttmálar hafa verið samþykktir á undanförnum árum til að tryggja borgurum menntun við hæfi. Skoðun 6. apríl 2022 11:31
Borgarstjóri lofar einni til tveimur Vínbúðum í miðbænum Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fullyrðir að áfram verði verslun á vegum ÁTVR í miðborg Reykjavíkur. Vínbúðinni í Austurstræti verði ekki lokað nema ein til tvær aðrar minni verslanir hafi verið opnaðar í miðbænum. Neytendur 6. apríl 2022 10:54
Borgarstjóri vaknar í íbúðalausri borg Borgarstjóri skrifar grein í Fréttablaðið í gær sem hlýtur að vekja mikla eftirtekt enda er eins og hann sé að vakna upp af værum svefni þegar kemur að húsnæðismálum. Í grein sinni kallar hann eftir sérstökum húsnæðissáttmála og virðist vera að átta sig á því að staðan á húsnæðismarkaði sé með ólíkindum. Skoðun 6. apríl 2022 09:31
Tennisvöllur Kínverja í Garðastræti má muna sinn fífil fegurri Það er óhætt að segja að umdeildur tennisvöllur við Garðastræti 41 sé kominn til ára sinna. Völlurinn var byggður af kínverska sendiráðinu á Íslandi í upphafi aldarinnar í óþökk nágranna. Lítil starfsemi er í húsinu og enginn sést með tennisspaða í hönd í mjög langan tíma. Innlent 6. apríl 2022 09:00
Allt að 170 flóttamenn borða saman á hverju kvöldi í Guðrúnartúni Samtökin Flottafólk, sem stofnuð voru til að bjóða flóttafólki frá Úkraínu kvöldmat og samkomuaðstöðu, taka á móti allt að 170 manns á hverju kvöldi í mat. Forsvarsmaður verkefnisins segir augljóst að fólkið þurfi á miðstöðinni að halda til að ræða málin. Innlent 5. apríl 2022 22:01
Meirihlutinn í Reykjavík fallinn og Framsókn í stórsókn Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna, jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn tapi tveimur borgarfulltrúum frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og fengi þrjá borgarfulltrúa. Innlent 5. apríl 2022 19:31
Undirbúa hátíð vegna hálfrar aldar afmælis einvígis Fischers og Spasskís Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki. Innlent 5. apríl 2022 18:36
Segir að orðræða XD í orkumálum sé „þreytt og hálfóþolandi“ Á fundi borgarstjórnar í dag var tekist á um orkumál en Eyþór Laxdal Arnalds borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir tillögu sem miðar að því að borgarstjórn álykti um að hvetja Orkuveitu Reykjavíkur til að kanna virkjanamöguleika á starfssvæði OR. Fram undan væru orkuskiptin sem kölluðu á mun meiri raforkuframleiðslu auk þess sem bætt orkuöryggi væri brýnna í ljósi alþjóðamála. Innlent 5. apríl 2022 17:38
Ítrekuð slagsmál og hópslagsmál í miðborginni Ítrekað kom til slagsmála og hópslagsmála í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir lokun veitingastaða í gærkvöldi. Innlent 5. apríl 2022 07:08
Innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar Innviðaráðuneytið hefur vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði tilkynnt borgarstjóra að hverskyns aðgerðir af hálfu borgarinnar sem skerða rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar séu í andstöðu við tveggja ára gamalt flugvallarsamkomulag samgönguráðherra og borgarstjóra vegna Hvassahrauns. Innlent 4. apríl 2022 22:44
Stærsta herskip sem sést hefur á Íslandi við bryggju í Reykjavík Stærsta herskip sem komið hefur til Íslands og flaggskip breska sjóhersins, flugmóðurskipið Prince of Wales, verður í Reykjavík fram á föstudag. Koma skipsins tengist þó ekki varnaræfingunni Norður-Víkingi heldur er liður í reynslusiglingum skipsins um Norður-Atlantshaf. Innlent 4. apríl 2022 20:42
Hundrað kílómetrar af skjölum útistandandi Þjóðskjalasafnið sér fram á mikla tæknivæðingu á næstu árum og segir öld pappírsins lokið. Fyrst verður þó að innheimta fjölda skjala sem hafa ekki skilað sér til safnsins og gæti safnkosturinn tvöfaldast við það. Innlent 4. apríl 2022 20:08
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað. Innlent 4. apríl 2022 19:58
Landsréttur klofinn í bótamáli vegna blöðruboltaslyss leikskólakennara Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í máli leikskólakennara sem hlaut alvarlega áverka í september 2016 en ágreiningur var milli aðila málsins um hvort slysið hafi átt sér stað í vinnutíma eða frítíma. Tveir af þremur dómurum við Landsrétt töldu að ekki væri um vinnuslys að ræða en einn skilaði sératkvæði þar sem hann taldi að fallast ætti á kröfu konunnar. Innlent 4. apríl 2022 12:20
Þessar götur verða malbikaðar í Reykjavík á árinu Malbikað verður alls fyrir 1.340 milljónir króna í Reykjavíkurborg í sumar. Er það hækkun um 200 milljónir frá því sem var áður gert ráð fyrir í áætlun. Ástæða þess er aukið niðurbrot slitlaga, einkum vegna veðurfars í vetur. Innlent 4. apríl 2022 11:59
Besta-spáin 2022: Meðvindurinn breyttist í mótvind Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram tólfta og neðsta sæti Bestu deildar karla í sumar. Íslenski boltinn 4. apríl 2022 10:01
270 metra langur prins leggur að bryggju í Reykjavík Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales siglir nú inn til hafnar í Skarfabakka. Vera skipsins er alls ótengd varnaræfingunni Norður-Víkingi sem stendur yfir hér á landi. Innlent 4. apríl 2022 08:51
Kviknaði í tveimur bílum í Árbænum Nokkur erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn en dælubílar voru sex sinnum kallaðir út. Innlent 4. apríl 2022 07:19
Framhaldsskólaleikarnir: Sjáðu Tækniskólann tryggja sér titilinn annað árið í röð Tækniskólinn tryggði sér sigur á Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands með sigri gegn FVA í úrslitaviðureigninni síðastliðinn fimmtudag. Rafíþróttir 3. apríl 2022 23:00
Með skilaboð til Íslendinga: „Hjálpin sem þið hafið veitt okkur gleymist aldrei“ Vesturbæingar og fyrirtæki í nágrenninu hafa tekið höndum saman við að útvega úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Hótel Sögu ýmsar nauðsynjar, þar á meðal sundkort. Við hittum flóttamann sem var með skilaboð til íslensku þjóðarinnar. Innlent 3. apríl 2022 20:31
Mikill hasar á lokaðri Sæbraut Sæbraut var lokað í dag fyrir hádegi, sem er vel því mikill hasar skapaðist þar í dag við tökur á kvikmyndinni Heart of stone. Lífið 3. apríl 2022 18:46
Líkamsárás í Kópavogi eldsnemma í morgun Töluverður erill var hjá lögreglu í dag, til að mynda var tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi klukkan fimm í morgun. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku. Innlent 3. apríl 2022 18:19
Hjálmar harmar skerta þjónustu strætó Strætó skerðir í dag þjónustu sína við farþega með því að draga úr tíðni ferð á nokkrum leiðum og hætta akstri þeirra fyrr á kvöldin. Stjórnarformaður skilur ósætti farþega vel og vonast til að skert þjónusta verði aðeins tímabundin. Innlent 3. apríl 2022 16:01