Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. Fótbolti 7. mars 2026 11:03
Stríðið í Íran er forskrift að leiðindum á mörkuðum Fjárfestar nefna reglulega geopólitík sem vaxandi áhættu fjármálamarkaða og virðast hafa gert það með réttu. Stigmögnun stríðsátaka á milli Írans og bandalagsþjóðanna Ísraels og Bandaríkjanna hefur valdið því að orkuverð hækkar hratt og bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaðir hafa lækkað á sama tíma. Umræðan 7. mars 2026 09:08
Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. Erlent 7. mars 2026 08:12
Segir Kúbu brátt munu falla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. Erlent 6. mars 2026 23:31
Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana. Erlent 6. mars 2026 15:30
Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. Erlent 6. mars 2026 14:19
Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. Handbolti 6. mars 2026 13:45
Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur. Erlent 6. mars 2026 10:32
Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. Erlent 6. mars 2026 06:57
Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafa varað við því að árásir á Íran muni aukast enn á næstu dögum. Ísraelsher sagðist í nótt hafa gert árásir á innviði klerkastjórnarinnar í Tehran og innviði Hezbollah í Beirút. Erlent 6. mars 2026 06:46
„Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu. Innlent 5. mars 2026 21:03
Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá. Erlent 5. mars 2026 16:41
Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Yfirvöld í Srí Lanka segjast reyna að „varðveita“ líf áhafnar annars íransks skips sem talið er í efnahagslögsögu ríkisins. Bandaríkjamenn sökktu freigátu undan ströndum Srí Lanka á dögunum en ráðamenn í Íran segja að því muni Bandaríkjamenn sjá eftir. Óljóst er hvort þetta skip sé herskip eða ekki. Erlent 5. mars 2026 10:10
Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. Erlent 5. mars 2026 08:46
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir stöðuna óljósa í Íran en Bandaríkjamenn grönduðu á miðvikudag freigátu þeirra á hafi úti og segjast ætla enn dýpra inn í landið. Í raun geti stjórnvöld lýst yfir sigri hvenær sem er. Erlent 5. mars 2026 00:03
Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. Innlent 4. mars 2026 20:41
Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Bandaríkjaher sökkti írönsku freigátunni Iris Dena með tundurskeyti, sem skotið var úr kafbáti, á Indlandshafi í morgun. Að sögn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er þetta í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldar sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti. Erlent 4. mars 2026 14:54
Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum. Innlent 4. mars 2026 11:57
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40
Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri. Viðskipti innlent 3. mars 2026 23:25
Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. Viðskipti innlent 3. mars 2026 13:12
Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Um 140 íslenskir ríkisborgarar eru staddir á áhrifasvæðum átakanna í Miðausturlöndum þar sem ófriður breiðist út með hraði. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að hún sé í virku samtali við hópinn. Innlent 3. mars 2026 13:01
Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Fjármálaráðherra segir átök í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi hækkun olíuverðs, slæm tíðindi fyrir baráttuna við þráláta verðbólgu. Hann eigi í góðu samtali við aðila vinnumarkaðar og muni kynna aðgerðir á allra næstu dögum. Viðskipti innlent 3. mars 2026 12:08
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Erlent 3. mars 2026 09:35
Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima. Innlent 3. mars 2026 08:13
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Erlent 3. mars 2026 06:31
Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki. Innlent 2. mars 2026 13:31
Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. Innlent 2. mars 2026 12:00
Vaktin: Sprengjum rignir enn Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt. Erlent 2. mars 2026 09:32