Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Smári Jökull Jónsson skrifar 2. september 2026 06:42 Íranir hafa svarað fyrir árásir Bandaríkjanna í gær sem voru þær fyrstu í Íran í rúman mánuð. Vísir/Getty Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær.
Árásir Bandaríkjamanna í gær voru sagðar svar við tilraunum byltingarvarðarins í Íran til árása á kaupskip í Hormússundi að því er bandaríski herinn greindi frá í gær. Bandaríkjamenn gerðu árásir á eldflaugaskotpalla á Larak-eyju á sunnudag en það voru fyrstu bandarísku árásirnar í Íran síðan í lok júlí. Rauði hálfmáninn í Íran segir að að minnsta kosti fimm manns, þar á meðal barn, hafi látist og yfir fimmtíu særst þegar brak úr bandarískri eldflaug hæfði hús í bænum Sirik í suðurhluta Íran en þar stóð yfir brúðkaupsveisla. Bandaríski herinn segist meðvitaður um fréttirnar en að aldrei sé skotið vísvitandi að óbreyttum borgurum. Íran hótar hefndum Íranski byltingarvörðurinn segir að Bandaríkjamenn mun iðrast árásanna og í nótt var fjölda flugskeyta og dróna skotið á bandaríska herstöð í Akaba í Jórdaníu en jórdanski herinn segist hafa grandað þrettán eldflaugum. Engin dauðsföll hafa verið staðfest. Þá segir kúveiski herinn að loftvarnir landsins hafi brugðist við árásum frá Íran í nótt og þá hafa heyrst sprengingar í Barein og íranski miðillinn IRNA segir jafnframt að byltingarvörðurinn hafi gert árás á herstöðvar í Kúrdistan-héraði í Írak þar sem vöruskemmur og búnaður hafi eyðilagst. Mánaðarlangt hlé á enda Árásirnar í nótt koma eftir rúmlega mánaðarlangt hlé en árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hófust í febrúar og svöruðu Íranir þá með árásum á herstöðvar og bandalagsríki við Persaflóa og með því að loka Hormússundi en sú ákvörðun hefur leitt til hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Í júní var viljayfirlýsing undirrituð um framlengingu vopnahlés sem samið var um í apríl en það samkomulag er útrunnið og átökin blossa upp á ný. Undir lok ágúst tilkynntu bandarísk stjórnvöld um nýjar refsiaðgerðir gegn Íran og ríkjum sem eiga í viðskiptum við landið. Íranskir embættismenn og ríkisfjölmiðlar hafa að mestu vísað refsiaðgerðunum á bug og segja þær aðeins framhald fyrri efnahagsþvingana Bandaríkjanna, sem að þeirra mati hafi fylgt í kjölfar hernaðarlegs ósigurs Washington í nýliðnum átökum.
Íran Barein Jórdanía Kúveit Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira