Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Agnar Már Másson skrifar 2. september 2026 23:54 Donald Trump í skrifstofu sinni í Hvíta húsinu. AP/Alex Brandon Ráðgjafar Bandraíkjaforseta vilja sjá til þess að forsetinn haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember, í von um að draga ekki enn frekar úr stuðningi við Repúblikana. Engu að síður hafa árásir færst í aukana við sundið undanfarna daga.
Átök milli Bandaríkjanna og Írans stigmögnuðust enn frekar aðfaranótt miðvikudags þegar stjórnvöld í Teheran gerðu árásir á bandarískar herstöðvar víðs vegar um Mið-Austurlönd í kjölfar þess að bandarísk árás hæfði hús í Íran þar sem brúðkaupsveisla var sögð fara fram, með þeim afleiðingum að fimm létust og tugir særðust. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social í gær að Bandaríkin hefðu gert röð „stórra og öflugra“ árása á írönsk skotmörk nálægt Hormússundi til að bregðast við því sem hann kallaði „misheppnaða tilraun“ til að leggja jarðsprengjur meðfram þessari mikilvægu verslunarleið. Ráðgjafar Trump hafa unnið að því að undanförnu að sannfæra forsetann um að koma í veg fyrir frekari stigmögnun í Íran þar til þingkosningum lýkur í nóvember, að því er Reuters greinir frá með vísan í fjóra heimildarmenn. Aftur á móti er haft eftir heimildum að ráðamenn í Hvíta húsinu hugsi sér að færa árásir aftur í aukana eftir að kosningum lýkur hinn 3. nóvember. Repúblikanar ráða nú ríkjum í Hvíta húsinu og báðum þingdeildum og það myndi gjörbreyta hinu pólitíska landslagi ef þeir misstu völdin í fulltrúadeildinni, hvað þá ef öldungadeildin félli Demókrötum einnig í skaut. Skoðanakannanir benda til þess að miklar líkur séu á því að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins og mögulega einnig í öldungadeildinni. Trump sagði fréttamönnum í dag að bandaríski herinn gæti gert aðra árás. „Þetta var mjög þung árás í gærkvöldi og við erum reiðubúin að gera aðra hvenær sem við viljum,“ sagði hann, að því er ABC greinir frá. Aðgerðastjórn Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum, CENTCOM, sagði í gær að hún hefði gert árásir á írönsk herskotmörk, þar á meðal loftvarnastöðvar, ratsjárkerfi, mannvirki á sjó, fjarskiptastöðvar og búnað til jarðsprengjulagna. CENTCOM gaf út myndskeið af aðgerðunum við Hormússund frá 1. september þar sem sjá má sprengjur hæfa skip og byggingar. Staðsetning árásanna er aftur á móti ekki tekin fram. Rauði hálfmáninn í Íran sagði síðar að fimm manns hefðu látist og nærri 70 særst eftir að bandarísk árás hæfði „brúðkaupsveislu“ í borginni Kuhestak við Hormússund, að sögn fréttastofu Fars, sem er að hluta ríkisrekin. Rauði hálfmáninn sagði að að minnsta kosti eitt barn væri meðal látinna.
Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira