Rashford neitar að gefast upp og ætlar að halda áfram að þrýsta á ríkisstjórnina Marcus Rashford hefur látið til sín taka í málefnum fátækra í Englandi og biðlar til ríkisstjórnar landsins að endurskoða ákvörðun sína varðandi matarmiða barna. Enski boltinn 16. júní 2020 11:00
Þrjár stunguárásir, nauðgun og andlát á ólöglegum samkomum Tvítugur maður lést, einni konu var nauðgað og minnst þrír hafa lent í stunguárás á tveimur ólöglegum samkomum á stór-Manchester svæðinu í Englandi. Alls sóttu sex þúsund manns samkomurnar, sem fram fóru í gær. Erlent 14. júní 2020 22:30
Rúmlega hundrað manns handteknir í London Mótmælendur, sem margir hverjir tilheyra hópum hægri öfgamanna, réðst að lögreglu eftir að þeir höfðu safnast saman til að standa vörð um styttur. Erlent 14. júní 2020 08:55
Lögregla og mótmælendur tókust á í London Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í London í dag. Mótmælendurnir sem um ræðir söfnuðust saman í miðbæ borgarinnar, og sögðust vera að vernda styttur á svæðinu frá and-rasískum aðgerðasinnum. Erlent 13. júní 2020 19:00
Styttan af þrælasalanum komin á þurrt land Stytta af þrælasalanum Edward Colston, sem mótmælendur í Bristol í Bretlandi rifu niður og hentu í höfn borgarinnar síðastliðinn sunnudag, hefur verið hífð upp úr vatninu. Hún verður ekki sett upp aftur á sama stað og hún stóð áður. Erlent 11. júní 2020 09:03
Punkturinn settur aftan við tímabilið hjá konunum Tímabilinu 2019-20 í tveimur efstu deildum kvenna í fótbolta á Englandi hefur verið slaufað vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 25. maí 2020 14:18
Tveir úr sama félaginu í ensku Championship-deildinni með veiruna Fjölmiðlar á Englandi greina frá því nú í morgun að tveir úr sama félaginu í ensku B-deildinni hafi greinst með kórónuveiruna eftir að leikmenn, þjálfarar og starfsfólk allra liðanna 24 gengust undir skoðun um helgina. Fótbolti 24. maí 2020 13:30
Bournemouth staðfestir smit í leikmannahópnum Bournemouth hefur staðfest að einn leikmaður liðsins sé með kórónuveiruna en enska úrvalsdeildin greindi frá því í gær að tveir aðilar tengdir ensku úrvalsdeildinni hafi greinst með veiruna. Sport 24. maí 2020 10:30
Tveir til viðbótar úr ensku úrvalsdeildinni með veiruna Tvö sýni reyndust jákvæð fyrir kórónuveirunni úr seinni skimun sem gerð var meðal leikmanna og annarra starfsmanna enskra úrvalsdeildarliða í vikunni. Í fyrri skimuninni reyndust sex jákvæð sýni og eru því minnst átta aðilar innan deildarinnar með veiruna. Fótbolti 23. maí 2020 23:00
Stungin til bana fyrir framan dóttur sína Þrjátíu og tveggja ára gömul bresk kona, Melissa Belshaw, var stungin til bana í gær fyrir framan þrettán ára dóttur sína. Belshaw mæðgurnar höfðu verið á gangi um Upholland Road í nágrenni bæjarins Wigan þegar maður, sem fórnarlambið þekkti til, réðst á þær. Erlent 21. maí 2020 22:59
Kante æfði ekki með Chelsea í dag af ótta við veiruna Það var enginn N’Golo Kante sjáanlegur á æfingu Chelsea í dag og Matt Law, blaðamaður á The Telegraph, segir að það eigi sér eðlilega skýringu. Hann hafi fengið frí frá æfingu dagsins og óvíst hvenær hann æfir aftur með liðinu. Fótbolti 20. maí 2020 20:14
Aðstoðarþjálfari Jóhanns Bergs með kórónuveiruna Enska úrvalsdeildarfélagið Burnley hefur staðfest að Ian Woan, aðstoðarþjálfari félagsins, sé enn þeirra sex úr ensku úrvalsdeildinni sem greindist með kórónuveiruna. Fótbolti 19. maí 2020 20:04
Kane styður hetjurnar í fremstu víglínu gegn faraldrinum og sitt gamla félag Harry Kane, landsliðsfyrirliði Englands í fótbolta, er mikið gæðablóð ef mið er tekið af ákvörðun hans um að sýna heilbrigðisstarfsfólki stuðning og styrkja um leið sitt gamla félag Leyton Orient. Enski boltinn 14. maí 2020 19:30
Sex vikna ungbarn lést af völdum Covid-19 í Bretlandi Barnið er það yngsta í landinu sem látist hefur af völdum sjúkdómsins. Erlent 8. maí 2020 14:13
Fá að standa á heimaleikjum Man. Utd Manchester United hefur fengið leyfi fyrir því að hafa svæði á Old Trafford þar sem 1.500 stuðningsmenn geta staðið á leikjum liðsins í stað þess að sitja. Enski boltinn 29. apríl 2020 20:01
Vinsæll starfsmaður á Anfield lést af völdum kórónuveirunnar Paul Smith, mikill stuðningsmaður og starfsmaður Liverpool, lést vegna kórónuveirunnar en þetta staðfesti fjölskyldan hans í gær. Smith var á spítala er hann lést. Fótbolti 28. apríl 2020 08:00
Liverpool frestar stækkun Anfield Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur ákveðið að fresta því um eitt ár að hefja vinnu við að stækka heimaleikvang sinn í 61.000 sæti. Fótbolti 27. apríl 2020 19:00
Phil Neville að hætta með enska landsliðið Það verður að öllum líkindum tilkynnt á morgun að Phil Neville sé hættur sem þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta. Sky Sports fréttastofan greinir frá þessu en gefið verður út á morgun hvort að Neville verði áfram með liðið eða ekki. Fótbolti 22. apríl 2020 17:31
Enskur heimsmeistari lést af völdum veirunnar Einn af dáðustu leikmönnum Leeds United lést í morgun af völdum kórónuveirunnar. Enski boltinn 17. apríl 2020 10:45
Tom gamli í sjöunda himni og er búinn að safna 1,8 milljörðum Tom ætlaði í upphafi að safna þúsund pundum fyrir Heilbrigðisstofnun Bretlands. Pundin eru nú orðin meira en tíu milljón talsins. Erlent 15. apríl 2020 22:09
Fyrrum heimsmeistari berst við kórónuveiruna á spítala Norman Hunter, fyrrum leikmaður Leeds og enska landsliðsins í knattspyrnu, liggur nú á spítala á Englandi þar sem hann berst við Covid19-sjúkdóminn. Fótbolti 10. apríl 2020 17:00
Einn dáðasti leikmaður Tottenham á sjúkrahúsi Einn dáðasti sonur Tottenham, Jimmy Greaves, liggur nú á sjúkrahúsi en Tottenham staðfesti þetta á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld. Fótbolti 7. apríl 2020 21:51
Liverpool biðst afsökunar og hættir við að nýta sér úrræði stjórnvalda Það hefur verið mikill hiti í og kringum topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool, eftir að félagið ákvað á laugardaginn að nýta sér neyðarúrræði stjórnvalda og fá hjálp við að borga laun starfsmanna félagsins. Fótbolti 6. apríl 2020 17:46
Fékk fylgdarkonur í partý í miðjum faraldri Kyle Walker, leikmaður Manchester City, hefur beðist afsökunar á því að hafa boðið tveimur fylgdarkonum í partý í síðustu viku þvert á reglur um samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 5. apríl 2020 13:45
Aflýstu Wimbledon risamótinu í tennis Í fyrsta sinn síðan í seinni heimsstyrjöldinni á fimmta áratugnum fer ekki fram Wimbledon mót í tennis í ár. Sport 1. apríl 2020 15:27
Lýstu upp Wembley til að senda Ítölum kveðju Ef ekki væri fyrir Covid-19 hefðu England og Ítalía mæst í vináttuleik á Wembley í gærkvöldi. Fótbolti 28. mars 2020 13:00
Gylfi og félagar klöppuðu fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Engandi og í öllum heiminum Everton birti í gær skemmtilegt myndband á samskiptamiðlum sínum þar sem bæði leikmenn, stuðningsmenn og starfsmenn félagsins klöppuðu fyrir heilbrigðisstarfsfólki en klukkan átta í gærkvöldi tóku landsmenn sig til og klöppuðu fyrir starfsfólkinu. Fótbolti 27. mars 2020 11:30
Enski boltinn hefst ekki aftur fyrr en í fyrsta lagi 30. apríl Keppni í enska boltanum hefst ekki aftur fyrr en um þarnæstu mánaðarmóti í fyrsta lagi. Enski boltinn 19. mars 2020 13:13
Enska deildin á bak við luktar dyr og enginn leikur á sama tíma Enska úrvalsdeildin ákveður framhaldið á morgun en það hafa lekið út hugmyndir um lok tímabilsins og það er bæði gott og slæmt fyrir Liverpool. Enski boltinn 18. mars 2020 09:00
Ensku deildunum frestað til 4. apríl til að byrja með Ekkert verður líklega spilað í ensku úrvalsdeildinni fyrr en í fyrsta lagi eftir eftir landsleikjahléið í lok mars. Enski boltinn 13. mars 2020 10:35