Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Eld­gos á Reykja­nes­skaga

Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tólfta varð norðan Grindavíkur í júlí 2025.

Fréttamynd

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið

Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka

Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka.

Innlent
Fréttamynd

Nota rústa­mynda­vél við leit að Lúð­vík

Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka

Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Hversu lengi eigum við að bíða?

Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að lifa í óvissu mánuðum og árum saman. Að „eiga“ heimili sem þú mátt ekki búa í. Heimili sem þú hafðir ekki val um að flytja úr. Að sjá samfélagið sitt standa tómt og vita á sama tíma að staðan gæti verið allt önnur.

Skoðun
Fréttamynd

Á­hættu­mat byggir ekki lengur bara á vísinda­legu mati

Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu.

Innlent
Fréttamynd

Þróunin mælist á­fram hæg en stöðug

Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“

Jarðeðlisfræðingur segir mikilvægt að sofna ekki á verðinum þó að ár sé liðið frá síðasta eldgosi á Reykjanesskaga og tekur fram að hann væri hikandi að hafa börn með sér í Grindavík. Enn sé töluverð hætta á eldsumbrotum á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Svartir svanir á Reykja­nesi

Að kvöldi 10. nóvember 2023 var Grindavík rýmd. Á fáeinum klukkustundum yfirgáfu um 3.700 manns heimili sín. Bærinn sem þau skildu eftir var annar en sá sem þau höfðu vaknað í um morguninn; sprungur lágu í gegnum götur og garða, landið hafði sigið og undir byggðinni lá kvikugangur.

Skoðun
Fréttamynd

„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn.

Innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin beri á­byrgð á hindrunum Þór­kötlu

Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grinda­víkur

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista.

Innlent
Fréttamynd

Land­ris og kvikusöfnun heldur á­fram

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. 

Innlent
Fréttamynd

„Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“

„Beinskeytt var yfirlýsingin en við erum bara komin þangað. Það er bara auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Þór­katla slökkvi vonar­neistann með nýjum samningi

Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. 

Innlent