Búa sig undir enn eina hitabylgjuna Undanfarnar vikur hafa kjarr- og skógareldar haft gríðarlega eyðileggingu í för með sér. Erlent 27. desember 2019 07:25
Forsætisráðherrann reynir að slökkva elda eftir óheppilegt frí Á meðan mannskæðir kjarreldar hafa geisað í Ástralíu var forsætisráðherrann í fjölskyldufríi á Havaí. Erlent 22. desember 2019 08:28
Forsætisráðherra Ástralíu biðst afsökunar á að hafa farið í frí til Hawaii Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur beðist afsökunar á því að hafa farið í frí til Hawaii í þessari í viku á meðan ástandið í landinu versnaði til muna vegna skógarelda sem þar hafa geisað undanfarna mánuði. Erlent 20. desember 2019 06:38
Hitametið í Ástralíu slegið annan daginn í röð Stjórnvöld í fjölmennasta ríki Ástralíu, New South Wales, hafa lýst yfir sjö daga neyðarástandi í ríkinu vegna mikilla skógar- og kjarrelda. Erlent 19. desember 2019 07:08
Meðalhitinn yfir fjörutíu stigum Aldrei hefur verið heitara í Ástralíu en í gær. Meðalhiti í landinu fór upp í 40,9 stig og hitinn er ekki á förum strax. Erlent 18. desember 2019 19:00
Heitasti dagur sögunnar í Ástralíu Ástralir upplifðu í gær heitasta dag sögunnar í landinu. Erlent 18. desember 2019 06:45
Systurfyrirtæki eins stærsta ópíóíðaframleiðandans setur mótefni á markað Systurfyrirtæki ópíóðaframleiðandans Purdue Pharma hefur sett á markað mótlyf við ópíóíða ofskömmtun. Viðskipti erlent 15. desember 2019 10:38
Skýstrókur gleypti í sig eldtungur í Ástralíu Myndband náðist af því þegar skýstrókur gleypti í sig eldtungur gróðurelda í Ástralíu. Erlent 9. desember 2019 22:32
Segist hafa verið beðin um að segja ekki frá nauðgun þar sem slíkt kæmi föður sínum illa Dóttir Bob Hawke, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, segir að sér hafi verið nauðgað á níunda áratugnum. Erlent 8. desember 2019 13:16
Slökkviliðsmenn í hættu í baráttu sinni við gróðureldana í Ástralíu Eldarnir hafa líka komist mjög nálægt meiriháttar þéttbýlissvæðum hvort sem það er við suðurströndina, miðströndina eða jafnvel vesturhluta Sydney í Ástralíu. Erlent 7. desember 2019 20:30
Gróðureldarnir of stórir til að hægt sé að slökkva Því hefur verið beint til íbúa nærri hamfarasvæðunum að flýja heimili sín þegar í stað. Erlent 7. desember 2019 11:41
Tólf daga þolraun í óbyggðum Ástralíu á enda Björgunarsveitir í Ástralíu björguðu um helgina konu sem hafði verið týnd í óbyggðum Ástralíu í hátt í tvær vikur. Konan lifði af með því að borða kex og drekka vatn úr nærliggjandi vatnsbóli. Ferðafélagar hennar eru enn týndir. Erlent 2. desember 2019 10:04
Kóalabjörninn Lewis er dauður Myndir af kóalabirni sem fannst skaðbrenndur og kona kom til bjargar vöktu mikla athygli í síðustu viku, en nú hafa borist fréttir af því að björninn sá allur. Erlent 26. nóvember 2019 09:52
Áströlsk móðir ákærð fyrir morð fyrir að skilja dætur sínar eftir í bíl Áströlsk móðir hefur verið ákærð fyrir morð eftir að tvö börn hennar fundust látin í bíl í steikjandi hita. Erlent 25. nóvember 2019 23:15
Reykjarmökkur yfir Sydney og Adelaide Í Sydney vöknuðu íbúar upp við þykkan mökk og eru loftgæðin í borginni sögð hættuleg sökum reyksins sem liggur þar yfir vegna gróðureldanna. Erlent 21. nóvember 2019 07:24
Kóalabirnir hafa orðið verulega illa úti vegna elda Toni Doherty kom á dögunum illa brenndum Kóalabirni til bjargar í Suður-Wales í Ástralíu. Björninn hafði brunnið í umfangsmiklum skógar- og kjarreldum þar í landi og Doherty fór úr skyrtu sinni til og vafði henni utan um björninn. Erlent 20. nóvember 2019 15:48
Erfitt að sjá fram á að tapa öllum eigum sínum og jafnvel lífinu Búist er við að gróðureldar í Ástralíu haldi áfram að versna. Íslendingur sem þar býr segir erfitt að sjá fram á að tapa öllum eigum sínum og jafnvel lífinu. Innlent 19. nóvember 2019 18:45
Reykur vegna gróðureldanna gerir íbúum Sydney lífið leitt Íbúar í áströlsku stórborginni Sydney vöknuðu í morgun upp við að mikill reykur lá eins og mara yfir borginni. Erlent 19. nóvember 2019 11:37
Spá versnandi ástandi í Ástralíu Reiknað er með því að erfið veðurskilyrði muni ýta undir frekari útbreiðslu gróðurelda í Ástralíu í komandi viku Erlent 17. nóvember 2019 18:59
Fjórir látnir vegna gróðureldanna í Ástralíu 120 eldar loga enn í New South Wales og Queensland og óttast er að eldar kvikni einnig í Vestur-Ástralíu. Erlent 14. nóvember 2019 08:29
Gróðureldar ógna enn íbúum í Ástralíu Yfirvöld í Ástralíu vara við því að hinir gríðarlegu gróðureldar sem nú brenna í tveimur ríkjum landsins verði áfram hættulegir þrátt fyrir að veðurskilyrði hafi skánað. Erlent 13. nóvember 2019 08:28
Á níunda tug kjarrelda brennur í Ástralíu Varað er við hamfaraaðstæðum fyrir elda í Nýju Suður-Wales í dag. Erlent 12. nóvember 2019 16:02
Neyðarástandi lýst yfir vegna gróðureldanna í Ástralíu Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fjölmennasta ríki Ástralíu, New South Wales, og þar með talið stórborgina Sydney, vegna gríðarlegra kjarrelda sem þar geisa en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt í ríkinu. Erlent 11. nóvember 2019 07:51
Eldarnir gætu ógnað íbúum í Sydney Óttast er að mikir gróðureldar í Ástralíu geti ógnað íbúum í Sydney. Að minnsta kosti þrír hafa látist í eldunum. Gróðureldunum hefur fylgt mikil eyðilegging en á annað hundrað heimili eru gjörónýt eftir eldana. Erlent 10. nóvember 2019 12:23
Þrjú látin í kjarreldum í Ástralíu Miklir eldar sem nú loga á þurrkasvæðum á austurströnd Ástralíu hafa kostað þrennt lífið. Þá hafa yfir 150 heimili brunnið til grunna og um og yfir 30 manns hafa slasast vegna kjarreldana. Erlent 9. nóvember 2019 10:35
Gróðureldar herja á íbúa í Ástralíu Talsmenn ástralskra yfirvalda segja að fordæmislaus fjöldi alvarlegra skógarelda ógni nú íbúum í ríkinu New South Wales í suðausturhluta landsins. Erlent 8. nóvember 2019 07:39
Hákarl beit tvo Breta við strendur Ástralíu Tveir breskir menn særðust alvarlega þegar hákarl beit þá á vinsælum ferðamannastað í Ástralíu. Annar maðurinn missti fót og hinn særðist á fæti. Erlent 29. október 2019 10:21
Einn alræmdasti raðmorðingi Ástralíu látinn Raðmorðingin Ivan Milat, betur þekktur sem bakpokaferðalangamorðinginn, lést í fangelsi í Sydney í Ástralíu í dag. Erlent 27. október 2019 10:02
Fjölmenni á síðasta degi þar sem heimilt er að klífa Uluru Stjórn þjóðgarðsins Uluru-Kata Tjuta samþykkti það einróma á fundi fyrir tveimur árum að banna göngur á fjallið sem er heilagt í hugum ástralskra frumbyggja. Erlent 25. október 2019 07:35
Ástralskir fjölmiðlar mótmæla leyndarhyggju Stærstu fjölmiðlafyrirtæki landsins tóku sig saman til að mótmæla ströngum þjóðaröryggislögum sem þau telja ógna fjölmiðlafrelsi. Erlent 21. október 2019 11:14