Andlát

Andlát

Fréttamynd

Bob Mackie er látinn

Fata-og búningahönnuðurinn Bob Mackie lést í gærkvöldi, 87 ára að aldri. Hann á að baki sér glæstan feril sem spannar um fimmtíu ár og hannaði flíkur sem eru skrifaðar í tískusöguna um ókomna tíð.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fal­legar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins

Mesti sögumaðurinn og húmoristinn sem bjó yfir þeirri galdralist að geta gætt orð lífi. Þannig er Steins Ármanns Magnússonar meðal annars minnst í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag. Steinn Ármann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan 13:00 í dag en bein útsending verður frá útförinni á Vísi.

Lífið
Fréttamynd

Ung­frú Austur­ríki látin að­eins 22 ára

Fegurðardrottningin Lucia Sisic, ríkjandi krúnuhafi fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Austurríki, er látin, aðeins 22 ára að aldri. Sisic fæddist með hjartalokugalla og gekkst undir sjö hjartaskurðaðgerðir á ævi sinni, þar af síðast á undanförnum vetri.

Lífið
Fréttamynd

„Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn

Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin

Ein þekktasta samtímalistakona Japans, Yayoi Kusama, er látin 97 ára að aldri. Myndlist Kusama einkenndist af doppum, skynörvandi munstrum og endalausum speglum og bar listakonan jafnan eldrauða hárkollu og klæddist litríkum flíkum í stíl við listina.

Lífið
Fréttamynd

Tim Curry er látinn

Breski leikarinn Tim Curry er látinn, 80 ára að aldri. Curry átti tæplega sextíu ára farsælan leikaraferil en er þekktastur fyrir sitt fyrsta hlutverk á stóra skjánum sem Dr. Frank-N-Furter í söngleikamyndinni The Rocky Horror Picture Show.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Dolly Parton látin

Bandaríska söngkonan Dolly Parton er látin 80 ára gömul. Hún lést í dag á heimili sínu í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum. 

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan Bunny Levine er látin

Leikkonan og bókasafnsvörðurinn Bunny Levine er látin, 97 ára að aldri. Hún lést í svefni á heimili sínu í Tarzana í Kaliforníuríki á fimmtudaginn. 

Lífið
Fréttamynd

Steinn Ár­mann er látinn

Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári.

Lífið
Fréttamynd

Frank Beard er látinn 77 ára að aldri

Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar.

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan Hayden Panettiere er látin

Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6.

Lífið
Fréttamynd

Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn

Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag.

Erlent
Fréttamynd

Ben Jones er látinn

Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Wilhelm Wessmann er látinn

Wilhelm Wessman, frumkvöðull á sviði hótel- og veitingareksturs, lést þann 3. ágúst síðastliðinn á Landspítalanum. Wilhelm fæddist 2. október 1942, á Höfn í Hornafirði, og var þannig 84 ára gamall.

Innlent
Fréttamynd

Don Nelson látinn

Don Nelson, næst sigrahæsti þjálfari í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, er látinn 86 ára að aldri.

Körfubolti
Fréttamynd

Minning Jorge Messi heiðruð víða um heim

Minning Jorge Messi var heiðruð fyrir leik Inter Miami í Bandaríkjunum í nótt. Sonur hans, Lionel Messi, var af skiljanlegum ástæðum fjarverandi í leiknum en Jorge lét lífið á föstudaginn síðastliðinn eftir langvinn veikindi.

Fótbolti
Fréttamynd

Heimir Hannes­son er látinn

Heimir Hannesson, lögfræðingur, fyrrverandi formaður Ferðamálaráðs Íslands og stofnandi Iceland Review, er látinn, níræður að aldri.

Innlent
Fréttamynd

Big Pussy er látinn

Leikarinn Vincent Pastore er látinn áttræður að aldri. Hann er frægastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Sopranos en þar lék hann Salvatore Bonpensiero, ævinlega kallaðan Big Pussy, eða bara Pussy.

Lífið