Erna Hrönn: Elskar að grúska og dró fram allt sem hún fann um Amy
Í ár eru 15 ár síðan Amy Winehouse kvaddi þennan heim aðeins 27 ára gömul. Leik- og söngkonan Gunnella Hólmarsdóttir heiðrar tónlistarkonuna ásamt frábærri hljómsveit með frásagnartónleikum þar sem áhorfendur fá að kynnast Amy í tali og tónum. Gunnella kíkti í spjall og sagði hlustendum frá sýningunni sem hlaut frábærar viðtökur á síðasta ári svo ákveðið var að endurtaka leikinn í Austurbæjarbíói þann 29. maí.