Innlent

Bein út­sending: 18 ára og hvað svo?

Lovísa Arnardóttir skrifar
Málþingið fer fram í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ en þar er sérnámsbraut.
Málþingið fer fram í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ en þar er sérnámsbraut. Aðsend

ÖBÍ réttindasamtök og sérnámsbraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ bjóða til málþings í hátíðarsal skólans í dag um breytingar sem verða á réttindum fatlaðra ungmenna þegar þau ná 18 ára aldri, bæði innan almannatrygginga- og skólakerfisins.

Málþingið hefst klukkan 15 í dag í hátíðarsal Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og stendur til klukkan 17. Hægt verður að horfa á það í streymi að neðan. 

Ungmenni sem hafa fengið ýmis konar stuðning í grunnskóla standa oft frammi fyrir því að erfiðara reynist að fá sambærilegan stuðning eftir að þau hefja nám í framhaldsskóla.

Á meðal dagskrárliða eru reynslusögur nemenda, þar sem hægt verður að fá innsýn í hvernig kerfin virka í raun og veru.

Þátttakendur:

  • Arndís Guðmundsdóttir deildarstjóri sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
  • Reynslusögur nemenda
  • Hrönn Stefánsdóttir, uppeldis og menntunarfræðingur og formaður Gigtarfélag Íslands.
  • Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir prófessor á menntavísindasviði HÍ
  • Ellen Óskarsdóttir barnahjúkrunarfræðingur og móðir langveikrar stúlku
  • Björgvin Már Karlsson nemandi í Hringsjá
  • Svanbjörg Sigmarsdóttir sviðsstjóri endurhæfingarsviðs TR



Fleiri fréttir

Sjá meira


×