Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar 3. nóvember 2026 12:42 Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum. En lögum samkvæmt eiga allir bílar að vera á dekkjum með a.m.k 3 mm mynstursdýpt, frá 1. nóvember. Á þessum tíma fyrir ári síðan lagðist yfir höfuðborgarsvæðið ófærðarveður með miklum hvelli og á örskotsstundu sátu bílar fastir á stofnbrautum og í húsagötum því margir voru enn á sumardekkjum. Þennan örlagaríka dag urðu 80 útköll vegna árekstra á höfuðborgarsvæðinu en það er sami fjöldi og í meðalviku. Tilkynningar um óhöpp til tryggingarfélaga voru enn fleiri og er ljóst að heildarfjöldi árekstra þennan dag var talinn í hundruðum. Hvers vegna dýptin skiptir málir Rannsóknir sýna að þegar bíll er stöðvaður í snjó sem ekur á 50 kílómetra hraða á vetrardekkjum þá stöðvast hann eftir 25- 32 metra. Ef hins vegar bíllinn er á sumardekkjum þá stöðvast bíllinn ekki fyrr en eftir allt að 63 metra. Það er eins og að renna yfir alla Laugardalslaug og 13 metra til viðbótar upp á bakkann. Góð vetrardekk geta skipt sköpum um hvort tekst að stöðva bíl í tæka tíð. Í umferðinni, til dæmis þegar hætta er á aftanákeyrslu eða öðrum árekstri, getur styttri hemlunarvegalengd ráðið úrslitum. Munurinn liggur í því að mynsturdýpt á að vera a.m.k. 3 mm og dekkin þverskorin svo þau hafi gott grip við íslenskar aðstæður. Því dýpra sem mynstrið er því betra er gripið og hemlunarvegalengdin á blautum eða hálum vegum meiri. En höfum í hugað að mynsturdýpt sem er 3 mm í nóvember er ekki endilega enn 3 mm í apríl því dekkin slitna við notkun og þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með ástandi dekkja á bílum sínum. Frá 1. nóvember til 14. apríl eiga allar bifreiðar að vera með lágmarks mynstursdýpt á hjólbörðum og það getur verið dýrkeypt að gæta ekki að því. Því lögreglan hefur eftirlit með dekkjanotkun landsmanna og sektar fyrir hvert dekk sem ekki uppfyllir kröfur laganna. Ekki bíða eftir fyrsta snjóhretinu Þó það geti verið freistandi að fresta því að skoða dekkin þegar göturnar eru enn snjólausar og lítið um frost, getur fyrsti alvöru snjór vetrarins fallið með skömmum fyrirvara. Þá er of seint að uppgötva að gömlu vetrardekkin sem virtust „sleppa einn vetur í viðbót“ hafa einfaldlega ekki nægilegt grip. Vetrardekk eru öryggisbúnaður. Þau halda bílnum stöðugum í beinum akstri og beygjum og það sem mestu máli skiptir, hjálpa okkur að stöðva þegar eitthvað óvænt gerist. Skoðum því dekkin áður en veturinn tekur ákvörðunina fyrir okkur. Ef þau eru orðin slitin, þá er tíminn til að skipta núna en ekki þegar bíllinn situr fastur eða rennur stjórnlaust í fyrstu hálkunni Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Nagladekk Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun