Skoðun

Þroska­hjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi

Guðmundur Ármann Pétursson skrifar

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fimmta greinin í ritröðinni.

Flest okkar hugsa öðru hverju um hvernig við viljum hafa lífið. Hvar okkur langar að búa, hvað við viljum fást við og með hverjum við viljum verja tímanum. Við gerum áætlanir, skiptum um skoðun og reynum aftur ef eitthvað gengur ekki upp. Í þessu felst frelsi sem okkur hættir stundum til að taka sem sjálfsögðum hlut.

Á fimmtíu ára afmæli Þroskahjálpar hef ég hugsað um þetta frelsi. Um það að geta horft fram á veginn með eftirvæntingu og treyst því að eiga val. Að fá að kynnast sjálfum sér, láta reyna á hugmyndir sínar og finna sína leið í lífinu.

Þannig vil ég að framtíðin blasi við fólki með þroskahömlun og skyldar fatlanir.

Í afmælisboði okkar fann ég sterkt fyrir því hversu mikils virði samstaða er. Þar var gleði, hlýja og stolt yfir starfi sem svo margir hafa lagt alúð í. Mér varð hugsað til fólksins sem hóf þessa vegferð og alls þess sem hefur þurft til að koma okkur hingað. Við eigum því fólki mikið að þakka. Arfur þess felst meðal annars í því að við getum nú leyft okkur að horfa lengra og setja markið hærra.

Mig langar að við gefum óskum fólks meira rými. Hlustum af áhuga þegar einhver segir frá því sem hann vill læra, starfinu sem hann langar að vinna eða draumnum um eigið heimili. Sýnum áhuga á því sem gæti orðið og verum tilbúin að finna leiðir saman.

Stundum geta fyrstu viðbrögðin ráðið miklu. Það er munur á því að mæta strax efasemdum eða að heyra: „Hvernig getum við hjálpað þér?“

Fólk sem þarf mikla aðstoð í daglegu lífi á sér líka óskir, áhugamál og framtíðardrauma. Okkar verkefni er að tryggja að stuðningurinn hjálpi því að fylgja þeim eftir.

Mér finnst eitt mikilvægasta verkefni næstu ára vera að skapa samfélag þar sem fatlað fólk getur treyst því að óskir þess séu teknar alvarlega og að það fái raunveruleg tækifæri til að láta á þær reyna.

Til þess að það geti orðið að veruleika þurfa réttindi að skila sér alla leið inn í daglegt líf. Lögum þarf að fylgja, ábyrgð þarf að vera skýr og stuðningur að vera til staðar þegar hans er þörf.

Ég vona að með tímanum verði jafnræði svo ríkur þáttur í samfélagi okkar að ekki þurfi sérstök lög til að tryggja fötluðu fólki sama rétt og öðrum. Á leiðinni þangað þurfum við að standa vel vörð um áunnin réttindi. Við þurfum að vanda ákvarðanir dagsins í dag svo frelsi og tækifæri morgundagsins verði raunveruleg.

Þar vil ég sjá Þroskahjálp halda áfram að vera vettvang samtals, hugmynda og breytinga, með fólk með þroskahömlun sjálft í fararbroddi. Við höfum margt að læra hvert af öðru og margt gott getur orðið til þegar reynsla, þekking og nýjar hugmyndir fá að mætast.

Eftir fimmtíu ára starf megum við vera stolt og þakklát. Ég finn líka til eftirvæntingar. Mig langar að sjá fleiri fá svigrúm til að uppgötva hvað þau vilja, velja sér leið og breyta um stefnu. Fá að lifa lífinu með öllum þeim möguleikum sem því fylgja.

Og ég hlakka til þess dags þegar ungt fatlað fólk horfir fram á veginn og hugsar fyrst og fremst: „Hvað langar mig að gera við líf mitt?“

Í þeirri spurningu býr falleg framtíð.

Höfundur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×