Skoðun

Enginn á að standa einn – sér­stak­lega ekki fyrir jólin

Alexander M. Árnason skrifar

Nú þegar nóvember er genginn í garð og jólin nálgast fara flest okkar að huga að undirbúningi hátíðanna. Við hlökkum til samverustunda með fjölskyldunni, góðs matar og þess að gleðja börnin okkar. En því miður eru jólin ekki jafn áhyggjulaus hjá öllum. Fyrir margar fjölskyldur í Hafnarfirði er þessi tími ársins þungur. Áhyggjur af því að eiga fyrir mat, nauðsynjum og jafnvel litlum jólagjöfum handa börnunum geta skyggt á þá gleði sem við viljum öll að fylgi hátíðunum. 

Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hefur um árabil staðið vörð um þá sem minnst mega sín. Þar starfar fólk af hugsjón, með hjartað á réttum stað, sem leggur tíma sinn og krafta í að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga í erfiðri stöðu. Í nýlegri færslu vekur á Facebook hjá Petreu Ómarsdóttur, sem er formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, vekur hún athygli á alvarlegri stöðu. Þar greinir hún frá því að nefndin hafi komið til móts við efnaminni einstaklinga og fjölskyldur með matvæli, gjafir og annan stuðning, en að nú sé óvissa um hvernig hægt verði að halda þeirri aðstoð áfram. Petrea bendir jafnframt á að nefndin hafi óskað eftir aðstoð bæjaryfirvalda án þess að viðunandi lausn hafi fengist, samkvæmt frásögn hennar. Þetta eru mikil vonbrigði.

Börnin mega aldrei gleymast

Það sem mér finnst einna sárast við þessa stöðu er að á bak við hverja beiðni um aðstoð er manneskja, fjölskylda og oft börn sem hafa ekkert um aðstæður sínar að segja. Börn eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir erfiða fjárhagsstöðu foreldra sinna. Þau eiga að geta hlakkað til jólanna eins og önnur börn, án þess að áhyggjur af mat á borðið eða jólagjöfum skyggi á hátíðina. Við getum verið stolt af Hafnarfirði á svo margan hátt. En styrkur samfélagsins mælist ekki eingöngu í framkvæmdum, fallegum byggingum eða fjárhagslegum árangri. Hann mælist líka í því hvernig við komum fram við þau sem þurfa mest á hjálp að halda.

Áskorun til meirihlutans

Ég skora á núverandi meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að taka þessa stöðu alvarlega og setjast án tafar niður með forsvarsfólki Mæðrastyrksnefndar til að finna raunhæfa lausn. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra, óháð pólitískum skoðunum, að engin fjölskylda í Hafnarfirði þurfi að standa ein þegar mest á reynir. Hér er ekki verið að biðja um munað eða óþarfa. Hér er verið að kalla eftir því að mikilvægt mannúðarstarf geti haldið áfram og að þeir sem þurfa aðstoð fái hana. Það er vonandi enn tími til að bregðast við fyrir jólin.

Að lokum vil ég þakka Petreu Ómarsdóttur og öllu því góða fólki sem stendur að Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar fyrir óeigingjarnt og mikilvægt starf.

Hafnarfjörður á að vera samfélag þar sem við stöndum saman, ekki síst þegar á reynir.

Gerum betur. Fyrir fjölskyldurnar. Fyrir börnin. Fyrir Hafnarfjörð.

Höfundur er formaður kjördæmissambands Framsóknar í Suðvesturkjördæmi. 




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×