Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar 1. nóvember 2026 14:32 Það er áhugavert að lesa grein Samúels Guðmundssonar um hina svokölluðu hægrisveiflu ungs fólks. Þar er dregin upp mynd af heilli kynslóð ungra Íslendinga sem virðist hafa fengið nóg af femínisma, fjölmenningu og pólitískri rétthugsun. Kynslóð sem upplifir sig svikna af samfélaginu, kúgaða af hugmyndafræði sem hún hefur ekki valið sér og svipta hefðbundnu hlutverki sínu í samfélaginu. Það er vissulega mikilvægt að hlusta á ungt fólk. Það er líka fullkomlega skiljanlegt að ungt fólk hafi áhyggjur af húsnæðisverði, atvinnuöryggi og framtíðinni. En það er töluvert stökk frá því að viðurkenna þessar áhyggjur yfir í að álykta að lausnin felist í afturhvarfi til íhaldssamari samfélagsgerðar, minni áherslu á jafnréttismál og aukinni tortryggni í garð þeirra sem koma hingað til lands í leit að betra lífi. Raunar er margt í greininni sem á meira skylt við pólitíska dramatík en raunveruleikann. Hversu mikil er hægrisveiflan eiginlega? Í upphafi greinarinnar er talað um mikinn áhuga ungu kynslóðarinnar á hægrisinnuðum gildum og skoðunum. En hversu mikil er þessi sveifla í raun? Samkvæmt tölum frá Prósent og Maskínu má áætla að stuðningur ungra karlmanna við Midflokkinn sé um 15,6%. Það er vissulega stuðningur sem ber að taka alvarlega, en hann er ekki beinlínis til marks um að heil kynslóð hafi tekið upp nýja pólitíska stefnu. Til samanburðar reiknast stuðningur ungra karla við Samfylkinguna 25,7% og samanlagður stuðningur Sósíalista, Pírata og VG er á svipuðu róli og Midflokksins. Það er því óþarfi að tala eins og íslenskir ungir karlmenn hafi allir vaknað einn morguninn og ákveðið að gerast íhaldsmenn. Enn virðist meirihluti þeirra ekki vera á sömu blaðsíðu og sá hópur sem Samúel virðist telja sig tala fyrir. Þó hann skipi sig sjálfan sem talsmann ungu kynslóðarinnar ætti hann mögulega að koma úr stærra mengi en 14% ungs fólks ef svo á að vera. Mér finnst að minnsta kosti ólíklegt að fleiri en það séu jafn sannfærðir og hann um að vestræn menning standi frammi fyrir gjörsamlegu siðrofi og hruni. Húsnæðisvandinn er vegna hælisleitenda? Samúel bendir réttilega á að húsnæðisverð sé orðið mörgum ungum einstaklingum og pörum erfið hindrun, þó það fari vissulega lækkandi um þessar mundir. Meðalaldur fyrstu kaupenda er líka stöðugt sá sami á undanförnum 20 árum. Hátt fasteignaverð er ekki hælisleitendum að kenna. Það er eðlileg krafa að hið opinbera aðstoði borgarana við að koma þaki yfir höfuðið. Enda er hið opinbera þegar að veita fleiri tugum milljarða í húsnæðisstuðning í formi hlutdeildarlána, húsaleigubóta, stofnframlaga vegna félagslegra leiguíbúða, séreignarleiðarinnar, sérstaks húsnæðisstuðnings, húsnæðis fyrir heimilislausra og svona mætti lengi telja. Ef við ætlum að ræða húsnæðisvandann af einhverri alvöru þurfum við að horfa á þær aðstæður sem hafa skapað hann, ekki beina gremju ungs fólks að hópi sem hefur ekkert með þróun fasteignaverðs að gera. Erlent vinnuafl á ekki að vera annars flokks Ég er raunar sammála Samúel um eitt mikilvægt atriði. Það á ekki að skapa lægri stétt erlends vinnuafls á Íslandi. Það er óásættanlegt ef atvinnurekendur geta nýtt sér stöðu fólks sem kemur hingað til lands til að bjóða því lakari kjör og verri starfsaðstæður. En lausnin á því er ekki að beina spjótunum að erlendu vinnuafli. Lausnin er að tryggja að allir sem starfa hér á landi njóti sömu réttinda, sömu verndar og sambærilegra kjara. Það er einfaldlega rökvilla að halda því fram að við þurfum að velja á milli þess að standa vörð um réttindi íslensks launafólks og þess að tryggja réttindi erlends launafólks. Við getum gert hvort tveggja. Kynjabaráttan góð eða slæm? Mér finnst sérstaklega áhugavert að Samúel velji að spyrja hvort kynjabaráttan hafi verið til góðs eða ills. Í greininni er henni svarað með nokkuð einfaldri og skekktri mynd af því hvað femínismi hefur í raun staðið fyrir. Samúel virðist líta á femínisma sem einsleita hugmyndafræði þar sem allir eru sammála um allt, allir karlar gerðir að sökudólgum og allar konur hvattar til að hafna hefðbundnu fjölskyldulífi. En femínistar þurfa ekki að vera sammála um allt. Femínistar eru með ólíkar áherslur og nálganir. Það er líka mikilvægt að greina á milli óleiðrétts og leiðrétts launamunar kynjanna. Óleiðréttur launamunur sýnir meðal annars hvernig laun karla og kvenna eru að jafnaði ólík þegar heildarhóparnir eru bornir saman. Þar er spurningin, af hverju vinna karlar meira? Af hverju eru þeir í ábyrgðarmeiri stöðum? Leiðréttur launamunur tekur hins vegar mið af fleiri þáttum, svo sem starfsstétt, menntun, starfsaldri og vinnutíma. Þar er spurningin, af hverju fá karlar hærri laun fyrir sömu störf? Samúel nefnir sjálfur að karlar vinni fleiri stundir, biðji oftar um launahækkanir og sækist frekar eftir stöðuhækkunum. En hvers vegna er það svo? Er ástæða til að skoða hvaða samfélagslegu væntingar, uppeldi og menning hafa áhrif á slíka hegðun? Þetta eru einmitt spurningarnar sem kynjafræðirannsóknir hjálpa okkur að svara. Og varðandi öráreitið sem felst í því að karlar sitji gleitt: Ég þykist vita að eistun á þér séu ekki svo stór að fæturnir á þér geti ekki verið beinir á meðan þú situr. Það er einfaldlega hægt að sýna öðru fólki tillitssemi án þess að upplifa það sem árás á eigin karlmennsku. Samúel bendir á að karlar séu enn í miklum meirihluta í verkamannastörfum og að þeir séu líklegri til að slasast eða deyja í vinnunni. Það er enginn að neyða unga karlmenn til að velja sér verkamannastörf. Það er enginn að banna þér að verða endurskoðandi. Í kaflanum um konur dregur Samúel upp mynd af samfélagi þar sem konur eru hvattar til að hafna fjölskyldulífi og horfa niður til mæðra. Ég veit ekki hvaðan þessi mynd kemur. Það er enginn að banna konum að eignast börn. Baráttan fyrir jafnrétti snýst einmitt um að fólk hafi raunverulegt val um hvernig það vill haga lífi sínu. Trump og nýja tískan í stjórnmálum Það er líka erfitt að lesa greinina án þess að sjá ákveðin áhrif frá þeirri stjórnmálamenningu sem Donald Trump hefur gert vinsæla. Með tilkomu hans hefur það að einhverju leyti komist í tísku að vera óheflaður, lágkúrulegur, dónalegur og dólgslegur. Að sýna fyrirlitningu er túlkað sem hreinskilni og tillitsleysi sem hugrekki. Það er auðvitað ekkert nýtt að stjórnmálafólk gagnrýni ríkjandi hugmyndir eða hæðist að pólitískum andstæðingum. En það er munur á því að vera gagnrýninn og því að byggja pólitíska sjálfsmynd sína á því að vera móðgaður yfir því að aðrir biðji um tillitssemi. Eru ungir karlmenn virkilega svo berskjaldaðir að þeir geti ekki breytt hegðun sinni til þess að öðrum líði betur? Er það virkilega svo mikil ógn við karlmennskuna að þurfa að sýna öðrum virðingu, hlusta á gagnrýni eða taka þátt í jafnréttisbaráttu? Ég held ekki. Taktu ábyrgð á eigin lífi Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að niðurlag greinar Samúels snúist um að gagnrýna hugsunina um að fólk sé eilíf fórnarlömb aðstæðna sinna. Því þegar ég les greinina sé ég mann sem virðist upplifa að meira og minna allt samfélagið sé að vinna gegn sér. Allt frá hælisleitendum til femínista. Húsnæðisverð, innflutt vinnuafl, gervigreind, skólakerfið, tungumálið og jafnvel það hvernig fólk ætti að sitja virðast allt vera hluti af einhvers konar samfélagslegu samsæri gegn ungum karlmönnum. Ég get ekki betur séð en að hér sé verið að lýsa þeirri fórnarlambshugsun sem höfundurinn segist sjálfur hafna. Það er sjálfsagt að gagnrýna stjórnvöld. Það er sjálfsagt að krefjast betri húsnæðisstefnu, öruggari atvinnu og sanngjarnari tækifæra. Það er líka sjálfsagt að benda á að ungir karlmenn glími við áskoranir sem þarf að taka alvarlega. En það er ekki lausn að kenna femínistum, innflytjendum eða samfélagsbreytingum um öll þau vandamál sem maður stendur frammi fyrir. Ég held að það sé kominn tími til að ungi Miðflokksmaðurinn taki sér tak og axli ábyrgð á eigin lífi. Eyddu minni tíma á internetinu. Þú ert þinnar eigin gæfu smiður. Ef þú hefur ekki hingað til kunnað að sýna umburðarlyndi, samkennd og hjálpsemi, þá er kannski kominn tími til að líta inn á við. Spurningin sem þú ættir að spyrja er ekki: „Hvað á samfélagið að gera fyrir mig?“ Hún ætti að vera: „Hvað get ég gert fyrir samfélagið?“ Höfundur er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og í framkvæmdastjórn Ungs jafnaðarfólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Donald Trump Bandaríkin Miðflokkurinn Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun