Innlent

Fjögurra bíla á­rekstur við N1 í Ártúnsbrekku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Töluverður viðbúnaður er í Ártúnsbrekkunni og umferðartafir.
Töluverður viðbúnaður er í Ártúnsbrekkunni og umferðartafir. Aðsend

Fjögurra bíla árekstur varð við  N1 í Ártúnsbrekku í morgun. Einn var fluttur á slysadeild. Aðeins er verið að aka eina akrein í vesturátt og því töluverðar tafir. 

Guðjón Ingason, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að hætta sé afstaðin en það sé enn dælubíll á vettvangi og þess beðið að hægt sé að fjarlægja bílana af vettvangi. 

Hann segir líklegt að slysið hafi áhrif á umferð í vesturátt en slysið varð þeim megin. Aðeins sé verið að aka eina akrein og mikil umferð.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×