Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. nóvember 2026 10:03 Frá eldgosi norðan Grindavíkur í apríl 2025. Vísir/Anton Brink Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur í dag út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Fyrstu eintök bæklingsins verða afhent ráðherrum að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Vísir verður í beinni útsending frá Ráðherrabústaðnum á ellefta tímanum og ræðir við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og fulltrúa Almannavarna. Spilari birtist hér fyrir neðan upp úr klukkan hálf ellefu. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að markmið bæklingsins sé að veita almenningi hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, veður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir. „Á undanförnum árum hafa eldgos, jarðskjálftar, snjóflóð, óveður og aðrir atburðir minnt á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast. Jafnframt hefur aukin áhersla verið lögð á viðbúnað almennings víða um Evrópu og á Norðurlöndum,“ segir í tilkynningunni. Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og markar tímamót í miðlun upplýsinga um viðbúnað til almennings. Hann verður jafnframt aðgengilegur á vefsíðunni verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku, auk útgáfu á auðlesnu máli og á táknmáli. Frá miðvikudegi til sunnudags verður prentaðri útgáfu bæklingsins dreift á völdum stöðum um land allt með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar samhliða sölu Neyðarkallsins. Markmiðið er að tryggja að sem flestir hafi aðgang að upplýsingum sem geta skipt sköpum þegar á reynir. „Áður fyrr voru upplýsingar um öryggi og samfélagslega innviði fastur hluti af símaskránni sem til var á flestum heimilum landsins. Í dag hefur samfélagið, tæknin og upplýsingamiðlun tekið miklum breytingum. Líkt og önnur Norðurlönd leggur Ísland nú aukna áherslu á að almenningur hafi greiðan aðgang að hagnýtum og áreiðanlegum upplýsingum um viðbúnað og neyðarviðbrögð. Bæklingurinn Verum viðbúin er liður í því.“ Í bæklingnum er meðal annars fjallað um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir truflanir á daglegu lífi, hvar hægt er að nálgast áreiðanlegar upplýsingar og hvaða búnaður getur verið gagnlegur á heimilinu. Þar er meðal annars bent á útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, hleðslubanka, vasaljós, lyf og aðrar nauðsynjar sem geta komið að góðum notum þegar á reynir. „Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra. Þegar einstaklingar og fjölskyldur gera einfaldar ráðstafanir til að búa sig undir mögulegar truflanir eykst öryggi samfélagsins í heild. Markmiðið með Verum viðbúin er að gera fólki auðveldara að vita hvað skiptir máli og hvar það getur nálgast áreiðanlegar upplýsingar ef óvæntar aðstæður skapast,“ segir Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Bæklingurinn er unninn í samstarfi fjölmargra sérfræðinga, ráðuneyti, stofnanir og samstarfsaðila undir forystu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Almannavarnir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Sjá meira