Sport

KA slítur sam­starfinu við Þór

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þór/KA heyrir nú sögunni til í knattspyrnunni.
Þór/KA heyrir nú sögunni til í knattspyrnunni. vísir/diego

KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna en nú hefur verið ákveðið að slíta samstarfinu.

„Samstarfssamningur félaganna rann sitt skeið á enda 15. október sl. og hefur KA tekið þá ákvörðun að endurnýja hann ekki. Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk,“ segir í yfirlýsingu frá KA.

Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna.

„Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af. KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Þór/KA var sett á laggirnar árið 1999 en liðið hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari.

Í grein Fóbolta.net kemur fram að Þór verði áfram í Bestu-deild kvenna en KA byrji nýja vegferð í 2. deildinni.

„Þetta var ekki það sem við bjuggumst við, kom okkur á óvart, en við ætlum á fullt gas og koma gríðarlega sterk inn í kvennaboltann, bæði í meistaraflokki, sem og í 2. og 3. flokki sem Þór," segir Reimar Helgason framkvæmdarstjóri Þórs í samtali við Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×