Erlent

Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Á laugardaginn síðastliðinn voru þúsund hið minnsta handteknir í Frakklandi í mótmælum. 
Á laugardaginn síðastliðinn voru þúsund hið minnsta handteknir í Frakklandi í mótmælum.  AP

Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag. 

Síðustu helgi var sami viðbúnaður lögreglu í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að stemma stigu við óeirðum og ofbeldi sem fylgdu mótmælunum sem náðu hápunkti sínum laugardaginn 17. október. Þá hafa þúsundir verið handteknir á síðustu vikum í tengslum við óeirðir mótmælanna. 

Sjá einnig: Þúsund hand­teknir og tára­gasið hvergi sparað

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu.

Innanríkisráðherra Frakklands Laurent Nunez varaði við mikilli „hættu á óeirðum“ og að mótmæli yrðu leyfð, þó ekki í miðsvæðis í stórborgum, að því er kemur fram í umfjöllun Le Monde. Síðustu helgi bannaði lögregla mótmæli víða í París og rýmdi meðal annars Bastillutorgið þar í borg. 

Lögreglumenn rýmdu Bastillutorgið í París síðasta laugardag.AP

Le Monde greinir frá því að fjörutíu lestarstöðvum verði lokað í París og einnig megi búast við truflunum á öðrum samgöngum. Útgöngubann muni gilda í sumum hverfum borgarinnar frá klukkan 23 í kvöld til klukkan 6 í fyrramálið. 

Sjá einnig: Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað

Mótmælin bera upp á hrekkjavöku og hefur Nunez varað við því að mótmælendum yrði ekki heimilt að bera grímur sem hyldu andlit þeirra. 

Þýsk ungmenni fylgja 

Sömuleiðis er búist við á annað hundrað mótmælenda í þrjátíu og fjórum borgum í Þýskalandi, meðal annars Berlín, Frankfurt og Munchen að því er kemur fram í umfjöllun Reuters. Mótmælin eru skipulögð af ungliðahreyfingunni Gen Z-regelt, sem mætti lauslega þýða sem „Z-kynslóðin kemur á reglu.“

Á heimasíðu samtakanna segjast þau mótmæla herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefjast aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerðum í loftslagsmálum. 

Þýsk stjórnvöld búast við því að mótmælin fari friðsamlega fram en vara við tilraunum öfgahópa til að nýta sér hreyfinguna. Í höfuðborginni Berlín hefur verið neglt fyrir glugga ýmissa lúxusverslana á verslunargötunni Kurfuerstendamm vegna áhyggna um mögulegar óeirðir. 

Verslunareigendur búa sig undir mögulegar óeirðir mótmæla í Berlín.AP

Þá komu tugir þúsunda saman í yfir fjörutíu borgum á Ítalíu í gær til að krefjast betri kjara og mótmæla háum framfærslukostnaði og auknum útgjöldum hins opinbera til hernaðarmála. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×