Mótmælaalda í Evrópu 2026

Fréttamynd

Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir það mikilvægt að taka vel á móti fólki sem flyst hingað til lands en á sama tíma gæta sérstakrar varúðar gagnvart þeim sem aðlagast illa. Hann kallar eftir því að stjórnvöld safni og birti ítarlegri upplýsingar um innflytjendur, meðal annars um afbrot, atvinnuþátttöku og fjárhagsaðstoð eftir uppruna og dvalargrundvelli.

Innlent
Fréttamynd

Her­lið á leiðinni og Ís­lendingar hafi varann á

Ítalir ætla að senda fimm hundruð hermenn til Mílanóborgar um helgina vegna mótmæla sem fyrirhuguð eru þar og Frakkar gera slíkt hið sama í París. Óeirðir hafa orðið víða í Evrópu síðustu daga og hefur utanríkisráðuneytið hvatt Íslendinga til að hafa varann á þegar ferðast er um álfuna. 

Erlent
Fréttamynd

„Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“

Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir það fjarri sinni skoðun að dæma eigi fólk út frá kynferði, lit eða trú. Hann segir að á sama tíma séu miklar samfélagslegar breytingar að verða á Íslandi og að hann hafi áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Tími sé kominn á að halda skrá utan um þjóðerni þeirra sem fremji ofbeldisbrot líkt og gert sé í Danmörku.

Innlent
Fréttamynd

Verð­lag og ó­vissa leiða til ó­eirða í Evrópu

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í evrópskum borgum í Frakklandi, Ítalíu og í Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.

Erlent
Fréttamynd

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“

Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa.

Erlent
Fréttamynd

Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum

Forsætisráðherra Frakklands segist hafa farið fram á það við sveitarstjórnir í Frakklandi að sett verði á takmarkað útgöngubann í nokkrum borgum landsins eftir óeirðir og mótmæli víða um land um helgina. Innanríkisráðherra Frakklands hefur viðurkennt að stjórnvöld hafi misst stjórn á ástandinu í borgum líkt og Paris og Lyon.

Erlent
Fréttamynd

Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“

Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 

Erlent
Fréttamynd

Neitaði að sam­þykkja af­sögn vegna mót­mælanna

Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Hvetur til stillingar og boðar að­gerðir

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Flúði tára­gas lög­reglu í Nice

Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 

Innlent
Fréttamynd

Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París

Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt.  Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum.

Erlent
Fréttamynd

Mót­mælendur réðust inn í ráð­húsið í Marseille

Meira en 160 manns hafa verið handteknir víðs vegar um Frakkland á mótmælum sem fara fram víða um land. Hópur mótmælenda braust um stundarsakir inn í ráðhúsið í Marseille og kveiktu í ferðaskrifstofu í Lyon. Búist er við því að tugir þúsunda taki þátt í mótmælum gegn versnandi gæðum menntunar og háum framfærslukostnaði.

Erlent
Fréttamynd

Eldur í ráðu­neyti og banka í ó­eirðum í Tirana

Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.

Erlent