Körfubolti

Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðu­hækkun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Freyr Einarsson er tekinn við kvennaliði Tindastóls.
Hlynur Freyr Einarsson er tekinn við kvennaliði Tindastóls. Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur látið Israel Martin fara sem þjálfara kvennaliðs félagsins og réði í staðinn aðstoðarmann hans.

„Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur ákveðið að gera breytingar á þjálfarateymi kvennaliðs félagsins og mun Hlynur Freyr Einarsson taka við sem aðalþjálfari liðsins,“ segir í frétt á miðlum Tindastóls.

Liðið vann tvo fyrstu leiki sína í Bónusdeildinni en hefur síðan tapað þremur í röð, þar af fengu Stólastelpurnar skell á heimavelli í síðasta leik.

Hlynur hefur til þessa verið aðstoðarþjálfari liðsins og þekkir hópinn vel.

„Hann hefur sýnt yfirvegun, metnað og einstaka vinnusemi og stígur nú inn í nýtt og stærra hlutverk. Við bjóðum Hlyn hjartanlega velkominn til starfa í nýju hlutverki og hlökkum mikið til að sjá hann leiða liðið áfram,“ segir í fréttinni.

Viðskilnaðurinn við Israel Martin var gerður í mikilli vináttu og af fullri virðingu samkvæmt fréttinni um þjálfarabreytingarnar.

„Í kvennaliðinu er fullt af dýrmætri reynslu og vinnusemi og ungir og efnilegir leikmenn að koma upp, sem gefur okkur fulla ástæðu til að horfa björtum augum fram á veginn.

Nú fylkjum við liði, stöndum þétt saman og byggjum áfram upp öflugt og skemmtilegt kvennakörfuboltalið hjá Tindastóli,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×