Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Smári Jökull Jónsson skrifar 31. október 2026 17:32 Þau Þórhildur og Jónas eru bjargvættir hamsatólgarinnar. Vísir/Stóruvellir ehf. Hjónin Þórhildur Jónsdóttir og Jónas Sigmarsson ætla að sjá til þess að hamsatólgin þjóðþekkta muni áfram fást í verslunum landsins. Reksturinn mun flytjast til Húsavíkur og segist Þórhildur vera að stökkva í djúpu laugina og að hún muni þurfa að ráða starfsfólk til vinnu við framleiðsluna.
Þegar fregnir bárust af því í september að framleiðsla hamsatólgar væri í uppnámi tóku eflaust margir andköf, enda tólgin ómissandi í augum margra og ekki síst í undirbúningi fyrir jólin. Fyrirtækið Stóruvellir ehf., sem var það eina á landinu sem framleiddi hamsatólg, var auglýst til sölu í fyrra án þess að kaupendur sýndu því áhuga. Í september síðastliðnum var framleiðslunni síðan hætt og sagði Garðar Jónsson stofnandi fyrirtækisins þá í samtali við Vísi að komið væri að leiðarlokum nema eitthvað óvænt myndi gerast. En svo fór ekki því nú hefur reksturinn verið seldur, líkt og kom fram í frétt Vísis í vikunni. Bjargvættirnir koma frá Húsavík og þangað mun reksturinn flytjast. „Við sáum þetta bara auglýst eins og svo margir. Við hjónin ræddum saman og maðurinn minn hvatti mig til að taka skrefið af því að mér fannst þetta áhugavert og ég er ein af þeim sem vildu ekki missa hamsatólgina,“ segir Þórhildur Jónsdóttir, eigandi fyrirtækisins Skræður viðbit sem nú mun taka við framleiðslunni. Eiga hús undir framleiðsluna Skræður er orð sem stundum hefur verið notað yfir hamsa og sjálf segist Þórhildur vera mikill unnandi hamsatólgarinnar. „Já, ég er það og ég steiki mikið upp úr tólg, kleinur og laufabrauð eins og fleiri og mér finnst hamsatólgin ómissandi. Við áttum húsnæði til að flytja reksturinn í og það hjálpaði náttúrulega til. Þannig að ég sló bara til, við höfðum samband og svo tók ég bara ákvörðun um að gera þetta.“ Framleiðslan er nú þegar hafin og tólgin aftur farin að sjást í hillum verslana. Fyrrum eigendur aðstoða við verkin fyrst um sinn og framleiðslan mun flytjast til Húsavíkur um áramótin. „Það er komin hamsatólg í verslanir og útikertin eru líka í framleiðslu. Þetta fer allt að detta í verslanir þannig að fólk getur farið að anda léttar,“ en auk þess að framleiða tólgina sjálfa hafa auk þess verið framleidd útikerti sem oft má sjá við leiði yfir vetrartímann. Þórhildur segir að í húsnæðinu sem framleiðslan muni færast í hafi áður verið matvælaframleiðsla. „Við þurfum aðeins að breyta en það var matvælaframleiðsla þarna áður, framleiðsla á hreindýraafurðum. Það er ýmislegt til staðar en við þurfum að yfirfara og gera klárt, hvað varðar eldvarnir og svo heilbrigðiseftirlit. Það er alls ekki mikið.“ Þarf að ráða fólk í vinnu og opnar á nýjungar Hún segist ekki hafa komið að fyrirtækjarekstri áður. „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina. Garðar sem átti þetta er að aðstoða okkur og ætlar að kenna mér taktana og öll trixin og koma mér vel inn í þetta. Ég hef engar áhyggjur af því og er mjög þakklát fyrir það.“ Þórhildur segir að Jónas maður hennar muni halda áfram í sinni vinnu en sjálf ætli hún á fullt í vinnu við framleiðsluna. „Ég reikna með að það verði til fjögur störf í kringum þetta, jafnvel meira þegar er verið að framleiða í kringum jól og þess háttar. Þegar verður bæði komin af stað kertaframleiðsla og hamsatólg þá verða þau jafnvel fleiri, kannski sex stöðugildi ásamt mér. Þannig að ég mun þurfa að ráða fólk í vinnu.“ Ekki hefur staðið á viðbrögðum vegna björgunar hamsatólgarinnar. „Ég hef bara fengið virkilega góð viðbrögð. Svo er aldrei að vita nema það verði einhverjar nýjungar ef þetta gengur vel. Ég væri alveg til í að gera þessa vestfirsku tólg, hnoðmörinn. Það væri gaman en ég ætla nú bara að byrja á að taka við þessu og flytja þetta hingað og svo sé ég til hvað verður. Þetta er ágætt fyrsta skref,“ sagði Þórhildur Jónsdóttir á Húsavík.
Jólamatur Matur Menning Neytendur Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Sjá meira