Sport

Sænska ríkis­stjórnin vill stöðva þátt­töku Rússa á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vladimir Putin Rússlandsforseti með rússnesku íþróttafólki sem vann verðlaun á Ólympíumóti fatlaðra.
Vladimir Putin Rússlandsforseti með rússnesku íþróttafólki sem vann verðlaun á Ólympíumóti fatlaðra. EPA/VYACHESLAV PROKOFYEV

Sænska ríkisstjórnin hefur leitað til framkvæmdastjórnar ESB til að koma í veg fyrir að rússneskir og hvítrússneskir íþróttamenn geti tekið þátt í heimsmeistaramótinu í skíðaíþróttum í Falun.

Þetta kemur fram í sænska blaðinu Aftonbladet, sem skrifar að ríkisstjórnin vilji hraða vinnu við nýjar vegabréfsáritunarreglur svo hægt verði að synja fleiri Rússum og Hvítrússum um vegabréfsáritun.

„Grimmilegu árásarstríði Rússlands er ekki lokið bara vegna þess að HM í skíðaíþróttum stendur yfir,“ sagði Johan Forssell, ráðherra útlendingamála, og heldur áfram:

„Á meðan þúsundir úkraínskra fjölskyldna búa sig undir vetur sem því miður virðist ætla að verða mjög erfiður, og rússneskar hryðjuverkasprengjuárásir halda áfram, sjáum við rússneska skíðamenn búa sig undir HM í Falun. Það er vægast sagt undarleg staða,“ sagði Forssell.

HM í skíðaíþróttum í Falun fer fram í febrúar og mars. Hingað til hafa 87 keppendur í norrænu greinunum fengið stöðu hlutlausra keppenda hjá Alþjóðaskíða- og snjóbrettasambandinu (FIS) og þar með grænt ljós á að keppa.

„Sænska skíðasambandið vill ekki hafa rússneska íþróttamenn á ráslínunni, þannig að það sem við gerum nú er að reyna að auka möguleikana á að synja um vegabréfsáritun,“ sagði Jakob Forssmed íþróttamálaráðherra.

Búist er við nýjum vegabréfsáritunarreglum ESB á fyrsta ársfjórðungi 2027.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×