Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar 27. október 2026 14:46 Upplýsingaóreiða er stórt og vaxandi vandamál í samtíma okkar. Í stuttu máli og einföldu snýst hugtakið um það þegar bornar eru fram rangar eða villandi upplýsingar sem torvelda fólki að greina rétt frá röngu, hvort sem það gerist af ásetningi eða óviljandi. Það þekkja flestir hve erfitt getur verið að leiðrétta rangfærslur þegar þeim hefur verið komið á flot, þótt það fari vissulega eftir eðli þeirra og efni. Mjög óundirbúin fyrirspurn Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í liðinni viku gerði þingmaðurinn Guðrún Hafsteinsdóttir að umtalsefni Stafræna heilsu sem sett var á fót í byrjun þessa árs og er starfrækt fyrst um sinn sem hluti af heilbrigðisráðuneytinu. Hélt hún því m.a. fram að með stofnun Stafrænnar heilsu væri vegið að nýsköpun í stafrænum lausnum og fæti brugðið fyrir hana. Þessum málflutningi var svo fylgt eftir í Morgunblaðinu þar sem haft var eftir Guðrúnu að leggja bæri Stafræna heilsu niður, þannig mætti spara um tvo milljarða króna og samtímis efla nýsköpun, bæta þjónustu og nýtingu fjármuna. Ég get ekki kallað málflutning Guðrúnar annað en upplýsingaóreiðu, hvort sem hann byggist á ásetningi eða þekkingarskorti. Það eitt að halda því fram að spara megi milljarða með því að leggja niður Stafræna heilsu er ótrúleg staðhæfing. Hlutverk einingarinnar er einmitt að reka miðlæg kerfi og nýta betur þá fjármuni sem renna til málaflokksins með því að flytja verkefni og starfsfólk frá öðrum stofnunum. Þá er staðhæfing um að einkaframtakið sé fótum troðið undarleg þegar það er eitt af markmiðum Stafrænnar heilsu að leiða og styðja við nýsköpun með stofnunum og nýsköpunarsamfélaginu. Með þessum málflutningi er staðreyndum snúið á hvolf og gengið fram af kappi með innistæðulausu karpi. Mér rennur því blóðið til skyldunnar að fara yfir helstu staðreyndir um Stafræna heilsu. Rekstur stafrænna innviða Stafræn heilsa ber ábyrgð á rekstri miðlægra kerfa sem heilbrigðiskerfið reiðir sig á daglega. Öruggur og áreiðanlegur rekstur þeirra er grunnurinn sem öll frekari þróun byggir á. Rekstur og þróun stafrænna innviða heilbrigðisþjónustunnar hefur til þessa verið dreifður á margar stofnanir, með tilheyrandi tvíverknaði og misjafnri getu til að sinna öryggismálum og nýsköpun. Með stofnun Stafrænnar heilsu eru verkefnin, starfsfólkið og fjármunir sem áður dreifðust á margar stofnanir sameinuð á einn stað. Þannig nýtist sérfræðiþekkingin betur og sama krónan skilar meiru þegar lausnir eru þróaðar einu sinni fyrir allt kerfið í stað þess að hver stofnun fari sína leið. Uppbygging einingarinnar endurspeglar þetta. Til Stafrænnar heilsu flyst starfsfólk sem fram til þessa hefur sinnt rekstri innviða, öryggismálum, notendaþjónustu, hugbúnaðarþróun og vörustjórnun á Landspítala og á miðstöð rafrænna heilbrigðislausna hjá embætti landlæknis. Þegar flutningi lýkur munu rúmlega hundrað manns starfa hjá einingunni – ekki nýjar stöður heldur fólk og þekking sem fyrir var í kerfinu og nýtist nú heilbrigðisþjónustunni allri. Þá eru hafnar viðræður við fleiri heilbrigðisstofnanir um að Stafræn heilsa taki yfir rekstur upplýsingatækni þeirra, enda er einingunni ætlað að vaxa í takt við þarfir kerfisins. Net- og upplýsingaöryggi er sett á oddinn. Ógnir í netheimum fara vaxandi og heilbrigðisgögn eru meðal viðkvæmustu upplýsinga sem til eru. Einstakar stofnanir, ekki síst þær smærri, hafa ekki bolmagn til að verjast flóknum netárásum upp á eigin spýtur. Með miðlægri öryggisþjónustu og samræmdum viðbúnaði er öryggi alls heilbrigðiskerfisins eflt. Stafræn heilsa heldur jafnframt utan um forgangsröðun stafrænna verkefna á landsvísu þannig að fjármunir renni þangað sem ávinningurinn er mestur fyrir sjúklinga og starfsfólk. Meðal stærri verkefna sem einingin leiðir eru samræmd atvikaskráning, „Mín heilsa“ á Ísland.is, þróun og innleiðing smáforrits fyrir sjúklingaflutninga og rafrænt barnablað. Hlutverkaskiptingin milli eigin starfsfólks og einkamarkaðar er skýr. Innan Stafrænnar heilsu er byggð upp sú kjarnaþekking sem ekki verður útvistað, þekking á innviðum og gögnum heilbrigðiskerfisins, öryggismálum, þörfum klínísks starfsfólks og á því hvernig lausnir vinna saman þvert á stofnanir. Sú þekking gerir eininguna að upplýstum kaupanda sem getur gert skýrar kröfur, borið saman tilboð, haldið birgjum við efnið og tryggt að kerfið verði ekki háð einstökum fyrirtækjum. Reynslan, hér heima sem erlendis, sýnir að opinber aðili sem kaupir tækni án eigin sérfræðiþekkingar borgar hærra verð og missir smám saman stjórn á eigin kerfum og gögnum. Þróunarvinnan sjálf er hins vegar að stórum hluta keypt af einkamarkaði. Nú stendur yfir rammasamningsútboð Stafrænnar heilsu um sérfræðiþjónustu, með áætlaða veltu um einn milljarð króna á ári. Útboðið er sérstaklega hannað til að lækka þátttökuþröskulda, ekkert þak er á fjölda samningsaðila, boðið er í einstök hlutverk í stað heilla teyma og ekki er gerð krafa um langan starfsferil eða fyrri verk fyrir hið opinbera. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar, sprotafyrirtæki og rótgróin fyrirtæki keppa því á jafnræðisgrundvelli um verkefni heilbrigðiskerfisins. Til samanburðar hlaupa samningar heilbrigðisstofnana vegna aðkeyptra stafrænna lausna á milljörðum króna árlega. Fyrir þessa fjármuni, sem áður voru inni í kerfinu, fær heilbrigðisþjónustan því öruggari rekstur, minni tvíverknað, skýrari forgangsröðun og stafræna þjónustu sem nær jafnt til allra landsmanna. Einföldun og skilvirkari þjónusta Um árabil hefur stafræn þróun verið dreifð milli stofnana með takmarkaðri samhæfingu og yfirsýn. Afleiðing af þessu er tvíverknaður í þróun, rekstri og innkaupum, ósamræmdar heilbrigðistæknilausnir og sérfræðiþekking sem ekki verið samnýtt. Í þessu felst ekki aðeins sóun heldur einnig misræmi sem gerir starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks flókið og torveldar öruggt flæði upplýsinga um sjúklinga milli stofnana og meðferðaraðila. Með Stafrænni heilsu er verið að sameina krafta og þekkingu til að bæta heilbrigðisþjónustu um allt land. Ekki veitir af því það er mikil innviðaskuld í stafrænum lausnum og þeim málum hefur ekki verið gefinn nægilegur gaumur af stjórnvöldum á liðnum árum. Sameiginleg innkaup og samnýting sérfræðiþekkingar skila betri nýtingu fjármuna og starfsfólks. Með Stafrænni heilsu er að auki markvisst unnið að því að greiða fyrir öruggum flutningi upplýsinga um sjúklinga milli heilbrigðisstofnana og meðferðaraðila og bæta aðgengi fólks að eigin heilsufarsupplýsingum. Aukinn stuðningur við nýsköpun Síðast en alls ekki síst er það skýrt markmið með Stafrænni heilsu að auðvelda nýsköpunarfyrirtækjum að þróa og koma nýjum lausnum í notkun í heilbrigðiskerfinu. Einingin skapar betri yfirsýn yfir þróunarverkefni, samræmir innkaup með skýrari kröfum og auðveldar nýsköpunarfyrirtækjum að átta sig á þörfum heilbrigðiskerfisins og á þeim kröfum sem lausnir þurfa að uppfylla. Ýmis gögn um þetta eru aðgengileg á vefsvæði stafrænnar heilsu og eru sprotar og fyrirtæki hvött til að kynna sér þau. Stafræn heilsa byggir þannig upp og rekur innviði sem stofnanir, fyrirtæki og almenningur geta treyst og tryggir framgang nýrra lausna sem ytri aðilar þróa. Markmiðið er að styðja við nýsköpunarsamfélagið án þess að gefa afslátt af öryggi og gæðum. Ýmsar stefnur og handbækur hafa þegar verið birtar til að efla samstarf við nýsköpunarfyrirtæki; rammasamningur um hugbúnaðarþróun, rekstrarþjónustu og ráðgjöf hefur verið auglýstur; þjónustukerfi sett upp til að taka við beiðnum frá nýsköpunaraðilum; og opnir og gagnsæir ferlar fyrir slíkt samstarf í vinnslu. Leitast er við að skýra leikreglur eins og frekast er unnt í nánu samstarfi við nýsköpunaraðila . Í því samhengi má nefna að til stendur að þróa innviði, svokallaðan sandkassa, sem auðvelda þeim að þróa lausnir sínar. Að lokum er ljúft og skylt að nefna að forsvarsfólk Stafrænnar heilsu tekur með gleði á móti þingflokkum til kynningar á starfseminni. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Stafræn þróun Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun