Skoðun

Pipar­sveinar fagna ný­út­kominni skýrslu um strand­veiðar

Kjartan Sveinsson skrifar

Á föstudaginn var barst mér fréttatilkynning úr óvæntri átt: „Piparsveinafélagið Örvænting á Bakkafirði fagnar því að strandveiðar hafi jákvæð áhrif á atvinnutekjur kvenna.“ Tilefnið var nýbirt skýrsla um áhrif strandveiða og byggðakvóta á atvinnutekjur og útsvarstekjur sveitarfélaga. Í annars nöturlegri skýrslu var ein ljóstýra fyrir einhleypa trillukarla: þrátt fyrir neikvæða fylgni milli strandveiða og útsvarstekna sveitarfélaga benda höfundar á að jákvæð tengsl kæmu fram við atvinnutekjur kvenna.

Fylgni eða orsakasamband?

Nú skal engan undra þótt margir staldri við. Hvernig geta atvinnutekjur kvenna verið einu jákvæðu byggðaáhrif af atvinnugrein þar sem yfirgnæfandi meirihluti starfa er á landsbyggðinni en 98% eru karlmenn? Svarið má finna í aðferðafræði 101: fylgni er ekki það sama og orsakasamband. Þess vegna kemur ýmislegt skrýtið fram í skýrslunni.

Hluti af vandamálinu snýr að skilgreiningu á byggðafestu og hvernig best sé að mæla hana. Skýrsluhöfundar virðast líta á útsvarstekjur sveitarfélaga sem nákvæmustu mælistikuna á byggðafestu og þar af leiðandi útsvar sem bestu skilgreininguna. Þar með minnkar vægi einyrkja í „byggðafestu“ sem gæti útskýrt hvers vegna það er einmitt einyrkjabúskapurinn sem höfundar gefa lægstu einkunn. Tilgangur strandveiða var þó aldrei að skapa útsvarstekjur sveitarfélaga heldur voru þær viðbragð við áliti Mannréttindanefndar sameinuðu þjóðanna og hugsaðar sem frjálsar, ábyrgar og sjálfbærar veiðar sem auðvelduðu nýliðun í sjávarútvegi og efldu um leið atvinnu og mannlíf í sjávarbyggðum landsins. Eins og svo oft áður velja andstæðingar smábáta þá mælistiku sem hentar best hverju sinni.

Hvað með atvinnuleysi?

Það er þó vel þess virði að skoða aðrar mögulegar skilgreiningar á byggðafestu. Atvinnuleysistölur draga til dæmis upp allt aðra mynd. Tökum Bakkafjörð sem dæmi, ekki eingöngu út af piparsveinafélaginu Örvæntingu heldur aðallega vegna þess að á Bakkafirði er ekkert laxeldi og ferðaþjónusta er í mýflugumynd. Fiskveiðar eru grunnforsenda búsetu enda fær Bakkafjörður töluvert úthlutað úr hinum ýmsu pottum 5,3% kerfisins. Byggðakjarninn er því svo til fullkomin tilraunastofa.

Hver eru áhrifin á atvinnuleysi? Á undanförnum þremur árum má greina skýrt mynstur: atvinnuleysi dettur niður þegar grásleppuveiðar hefjast en rýkur svo aftur upp þegar strandveiðum lýkur. Hér eru það einmitt einyrkjaútgerðirnar – grásleppa og strandveiðar – sem skýrsluhöfundar afskrifuðu sem sýna sterkustu áhrifin á byggðafestu.

Ætlar enginn að hugsa um börnin?

Næst mætti færa sterk rök fyrir því að byggðafesta sé svo til gagnslaus ef engin verða kynslóðaskiptin. Þá er gagnlegt að skoða hver íbúaþróun er með tilliti til aldurs íbúa. Á Bakkafirði hefur íbúum í heild fækkað um 13% frá 2010 (úr 75 í 65) en íbúum yngri en 18 hefur fækkað um 78% (úr 18 í 4). Það sem er sérstaklega áhugavert í því samhengi er að Bakkafjörður fékk fyrst sértækan byggðakvóta 2014 en hrun barna fylgir í kjölfarið.

Þess ber að geta að Bakkafjörður er ekki einsdæmi hvað þetta varðar. Aðrir staðir hafa svipaða sögu að segja. Á Raufarhöfn hefur íbúum fækkað um 24% (úr 217 í 166) en börnum hefur fækkað um 91% (úr 54 í 5). Á Suðureyri hefur íbúafjöldi svo til staðið í stað með 300 manns frá 2010 en börnum hefur fækkað úr 90 í 61, eða um 31% – enn og aftur kemur mesta fækkun barna beint í kjölfar sértæks byggðakvóta. Svona mætti lengi telja því einu byggðakjarnarnir sem skera sig úr eru Djúpivogur og Breiðdalsvík. Allir hinir sýna sömu þróun: þegar sértækur byggðakvóti kemur í byggðakjarna fara börnin.

Þá vakna óneitanlega spurningar um hvers vegna börnum fækkar umfram fullorðna og hvað það segir um samsetningu íbúanna.

Excelskjal vs. raunheimar

Tölfræði er ómissandi í félagsvísindum en útskýringargildi hennar er takmarkað. Oft lærir maður meira á því að fara út í raunheima og tala við fólk. Þeir sem þekkja til vita að störfin sem skapast við vinnu í landi eru góðra gjalda verð en að öllu jöfnu lítt eftirsóknarverð fyrir heimamenn. Byggðastefnan sem höfundar skýrslunnar hampa er í raun lítið annað en verbúðarvæðing sjávarplássanna. Barnafjölskyldur flýja og við tekur stöðugt rennsli láglaunafólks í tímabundinni vinnu. Einn félagi minn flutti sérstaklega til Suðureyrar – með konu sinni kennara og tveimur börnum – til að freista þess að fá byggðakvóta. Þar kom hann að lokuðum dyrum; nokkrum árum seinna gafst hann upp og flutti á Ísafjörð.

Dæmin sýna að byggðafesta verður ekki mæld í útsvarstekjum einum saman. Þar sem smábátasjómenn fá raunverulegt tækifæri til að sækja sjóinn skapast sjálfbær störf, barnafjölskyldur eiga sér framtíð og samfélögin blómstra.

Höfundur er félagsfræðingur og formaður Landssambands smábátaeigenda.




Skoðun

Sjá meira


×