Innlent

„Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“

Árni Sæberg skrifar
Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borginni.
Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borginni. Vísir/Lýður Valberg

Oddviti Miðflokksins í borginni segir alltaf erfitt að segja upp fólki en að Miðflokkurinn styðji nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar. Hann kveðst bundinn trúnaði um efni aukaborgarstjórnarfundar í morgun en heimildir Vísis herma að þar hafi verið ræddar uppsagnir tuga borgarstarfsmanna.

Aukafundi borgarstjórnar, þar sem hagræðingaraðgerðir voru til umræðu, lauk um tíuleytið í morgun. Niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasviðs og velferðasviðs sem urðu fyrir hnífnum í sumar.

Erfiðlega hefur gengið að fá svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu fulltrúar meiri hlutans ekki veita viðtöl um málið fyrr en að loknum aðgerðum sem standa munu yfir í dag.

Reksturinn hafi ekki verið sjálfbær

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, ræddi stuttlega við fréttamenn að loknum fundi borgarstjórnar. Hann kvaðst ekki mega greina frá því sem kom fram á fundinum en sagði þó að Miðflokkurinn styddi hagræðingar í rekstri borgarinnar.

„Enda hefur rekstur borgarinnar ekki verið sjálfbær og verið haldið uppi með einskiptisaðgerðum, eins og sölu lóða á okurverði og slíkt, sem getur ekki staðið undir almennum rekstri borgarinnar. Hann þarf að vera bara í jafnvægi.“

Þannig að þú ert að staðfesta að þið voruð að ræða uppsagnir?

„Ég er ekki að staðfesta neitt í neinum smáatriðum en það er auðvitað ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar, þessi fundur.“

Uppsagnir í áföngum

Ari sagði að það væri alltaf erfitt að skera niður og þar vægjust á uppsagnir og önnur rekstrarleg viðfangsefni. Það væri þó nauðsynlegt verkefni og stjórnendur gætu ekki vikið sér undan því.

Miðflokkurinn væri ekki hluti af meiri hlutanum en hefði hvatt til þess að tekið væri af ábyrgð á rekstri borgarinnar. 

Er þetta stærri hagræðing en við höfum séð hingað til?

„Eins og ég segi, það má ég ekkert tjá mig um efnið en það verður skýrt frá því síðar í dag, þannig að það er ekki lengi að bíða.“

Eru öll svið borgarinnar undir?

„Eins og þú veist þá er lokið hagræðingaraðgerðum á nokkrum sviðum. Það var byrjað á skrifstofu borgarstjóra, borgarritara og svo skóla- og frístundasviði og velferðarsviði. Þannig að það er ekki allt undir í einu lagi, þetta hefur verið í áföngum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×