Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. október 2026 15:02 Robert F. Kennedy hugsi á fundi. Hann var myrtur árið 1968 þegar hann var í harðri kosningabaráttu til forseta vestanhafs. 24 ára gamall Palestínumaður skaut Kennedy til bana þegar sá síðarnefndi stytti sér leið í gegnum eldhús á hóteli í Los Angeles á leið á blaðamannafund. Getty Images Leyniskjöl, sem skjalavörður KGB smyglaði til Vesturlanda fyrir rúmum þrjátíu árum, afhjúpa enn áður óþekkt njósnamál – nú síðast um bandarískan erindreka sem túlkaði fyrir Robert F. Kennedy eldri í ferð hans um Sovétríkin.
Í hlaðvarpsþættinum Skuggavaldið fjalla prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir um skjalavörðinn Vasilí Mitrokhin. Hann starfaði hjá sovésku leyniþjónustunni KGB í áratugi og skrifaði í laumi upp leyndarmál hennar á tólf ára tímabili. Eiríkur og Hulda ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Fjölmiðillinn Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL) greindi frá því í sumar að í óbirtu handriti úr Mitrokhin-skjölunum komi fram að bandaríski erindrekinn Frederick Flott hafi um miðjan áttunda áratuginn afhent KGB yfir hundrað leynileg skeyti frá bandaríska utanríkisráðuneytinu. Lést í skugga ásakana Flott var túlkur Roberts Kennedys í óvenjulegri ferð hans um Sovétríkin árið 1955 og fékk í kjölfar hennar dulnefnið „Douglas“ hjá KGB. Samkvæmt skjölunum lét Júrí Andropov, þáverandi yfirmaður KGB og síðar leiðtogi Sovétríkjanna, greiða flugferð Flotts til Moskvu árið 1974 ásamt tíu þúsund dala þóknun. Flott lést árið 2006 án þess að hafa svarað ásökununum. Ættingjar hans vísa þeim á bug og engar opinberar heimildir staðfesta Moskvuferðina. Málið sýnir engu að síður að fræðimenn eru enn að afhjúpa nýja sögu úr skjölunum, rúmum þremur áratugum eftir að þau bárust til Vesturlanda. En hver var Mitrokhin? Í Skuggavaldinu er sögð saga þessa hægláta skjalavarðar sem fékk slíka óbeit á kerfinu að hann einsetti sér að fella það. Eftir að hafa verið færður niður í skjalasafnið, þar sem myrkustu leyndarmál KGB fóru í gegnum hendur hans, fæddist hugmyndin um hefnd. Aðferð hans var fífldjörf: Hann stal aldrei skjölum heldur hripaði örsmáar minnisgreinar á blöð, faldi þau í skónum og gekk fram hjá vörðunum á hverju kvöldi í tólf ár. Heima vélritaði hann minnispunktana og gróf blaðsíðurnar í mjólkurbrúsum undir gólfi sumarhúss síns skammt frá Moskvu, án þess að fjölskyldan vissi nokkuð. Sýnishorn falin undir brauði og pylsum Eftir hrun Sovétríkjanna tók hann lest til Eystrasaltslandanna, dularklæddur sem fátækur maður, með sýnishorn úr skjalasafninu falin undir brauði og pylsum í tösku sinni. Bandaríkjamenn vísuðu honum frá en Bretar áttuðu sig fljótt á verðmæti skjalanna. Þann 7. nóvember 1992 var Mitrokhin, fjölskyldu hans og þúsundum blaðsíðna af leyniskjölum komið með leynd til Bretlands. Skjölin vöktu mikla athygli og töluverða röskun í njósnaheiminum vestan hafs sem austan, en talið er að þau hafi komið upp um tæplega þúsund útsendara KGB um allan heim. Þáttur Skuggavaldsins sem kemur út í dag er sá fyrri af tveimur um Mitrokhin-skjölin. Í seinni þættinum verður sögð saga breskrar ömmu sem njósnaði fyrir Sovétríkin í fjóra áratugi án þess að nokkurn grunaði. Skuggavaldið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Tengdar fréttir Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Rauða herdeildin, betur þekkt sem RAF, var einn þekktasti hryðjuverkahópur Evrópu á áttunda áratugnum. Haustið 1977 fundust leiðtogar hennar látnir í klefum sínum í Stammheim fangelsinu, því rammgerðasta í öllu Vestur-Þýskalandi. Yfirvöld sögðu fangana hafa stytt sér aldur en sú skýring er enn umdeild í Þýskalandi. 12. október 2026 15:01 Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Fá mál hafa sameinað Bandaríkjamenn betur þvert á pólitískar skoðanir en sú afstaða að ekki séu öll kurl komin til grafar varðandi líf og dauða Jeffrey Epstein. Skömmu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa í New York árið 2019 fæddist setningin „Epstein drap sig ekki“. Hún ferðaðist hratt frá netheimum inn í bandarísk stjórnmál og sprakk loks af fullum þunga í Hvíta húsinu. 14. september 2026 14:31 Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Sjónvarpskonan Martha Stewart hefur greint frá því hvað var það síðasta sem hún sagði við John F. Kennedy yngri áður en hann lést í flugslysi með eiginkonu sinni, Carolyn Bessette, og systur hennar undan ströndum eyjunnar Martha's Vineyard árið 1999. Þau hafi rætt um flugferðina og hvort Kennedy myndi fljúga flugvélinni einn. 9. september 2026 10:58 Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira
Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Rauða herdeildin, betur þekkt sem RAF, var einn þekktasti hryðjuverkahópur Evrópu á áttunda áratugnum. Haustið 1977 fundust leiðtogar hennar látnir í klefum sínum í Stammheim fangelsinu, því rammgerðasta í öllu Vestur-Þýskalandi. Yfirvöld sögðu fangana hafa stytt sér aldur en sú skýring er enn umdeild í Þýskalandi. 12. október 2026 15:01
Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Fá mál hafa sameinað Bandaríkjamenn betur þvert á pólitískar skoðanir en sú afstaða að ekki séu öll kurl komin til grafar varðandi líf og dauða Jeffrey Epstein. Skömmu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa í New York árið 2019 fæddist setningin „Epstein drap sig ekki“. Hún ferðaðist hratt frá netheimum inn í bandarísk stjórnmál og sprakk loks af fullum þunga í Hvíta húsinu. 14. september 2026 14:31
Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Sjónvarpskonan Martha Stewart hefur greint frá því hvað var það síðasta sem hún sagði við John F. Kennedy yngri áður en hann lést í flugslysi með eiginkonu sinni, Carolyn Bessette, og systur hennar undan ströndum eyjunnar Martha's Vineyard árið 1999. Þau hafi rætt um flugferðina og hvort Kennedy myndi fljúga flugvélinni einn. 9. september 2026 10:58