Gunnar Lárus sigraði Bakgarðshlaupið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Garpur I. Elísabetarson skrifa 17. október 2026 10:33 Gunnar Lárus þegar hann kom í mark sem sigurvegari. Vísir/Viktor Freyr Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi fór fram um helgina í Elliðarárdalnum. Fimmtán hlauparar hlupu af stað í hádeginu á laugardag og fór Gunnar Lárus Karlsson með sigur úr býtum eftir 69 hringi. Bakgarðshlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er. Hlaupið er haldið alla jafna tvisvar sinnum á ári en nú er komið að landsliðakeppninni þar sem þeir fimmtán hlauparar sem hafa farið hvað lengst taka þátt. Íslensku hlaupararnir kepptu á móti hlaupurum í 67 öðrum löndum í því hver getur enst lengst. Phil Gore frá Ástralíu á heimsmetið sem eru 119 hringir og því 119 klukkustundir. Þorleifur Þorleifsson átti Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi sem eru 62 hringir en með þessum sigri er Gunnar Lárus nýr Íslandsmetshafi með sína 69 hringi. Guðjón Sigurðsson var í öðru sæti og er svokallaður aðstoðarmaður en hann datt í hring númer 68 og þar með lauk keppnninni. Hlaupararnir fimmtán sem skipuðu íslenska landsliðið eru Þorleifur Þorleifsson, Mari Jaersk, Þórdís Ólöf Jónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson, Sylwester Kalucki, Gunnar Lárus Karlsson, Tómas Þór Jacobsen, Sölvi Snær Egilsson, Adam Komorowski, Friðrik Benediktsson, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Hekla Hannesdóttir, Oddur Máni Malmberg og Hildur Guðný Káradóttir. Hér getur þú fylgst með hvernig hinum liðunum gengur. Fylgst var með í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Bakgarðshlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er. Hlaupið er haldið alla jafna tvisvar sinnum á ári en nú er komið að landsliðakeppninni þar sem þeir fimmtán hlauparar sem hafa farið hvað lengst taka þátt. Íslensku hlaupararnir kepptu á móti hlaupurum í 67 öðrum löndum í því hver getur enst lengst. Phil Gore frá Ástralíu á heimsmetið sem eru 119 hringir og því 119 klukkustundir. Þorleifur Þorleifsson átti Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi sem eru 62 hringir en með þessum sigri er Gunnar Lárus nýr Íslandsmetshafi með sína 69 hringi. Guðjón Sigurðsson var í öðru sæti og er svokallaður aðstoðarmaður en hann datt í hring númer 68 og þar með lauk keppnninni. Hlaupararnir fimmtán sem skipuðu íslenska landsliðið eru Þorleifur Þorleifsson, Mari Jaersk, Þórdís Ólöf Jónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson, Sylwester Kalucki, Gunnar Lárus Karlsson, Tómas Þór Jacobsen, Sölvi Snær Egilsson, Adam Komorowski, Friðrik Benediktsson, Þuríður Elín Þórarinsdóttir, Hekla Hannesdóttir, Oddur Máni Malmberg og Hildur Guðný Káradóttir. Hér getur þú fylgst með hvernig hinum liðunum gengur. Fylgst var með í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Bakgarðshlaup Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira