Formúla 1

Vill gera breytingar en liðs­stjórinn er ekki vanda­málið

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton vill gera breytingar á Ferrari-liðinu en ekki þær sem almenningur er að biðja um.
Lewis Hamilton vill gera breytingar á Ferrari-liðinu en ekki þær sem almenningur er að biðja um. Bryn Lennon/Getty Images

Lewis Hamilton segist standa með Fred Vasseur sem liðsstjóra Ferrari. Hann tekur þó fram að hann myndi gera einhverjar breytingar á stjórnendum liðsins ef hann mætti ráða.

Gengi Ferrari-liðsins hefur ekki verið gott í síðustu keppnum og velta einhverjir fyrir sér hvort að stjórn liðsins sé hæf til þess að vinna titla fyrir ítalska liðið. Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton gekk til liðs við Ferrari á síðasta ári en ljóst er að hann á ekki langt eftir af ferlinum þar sem hann er 41 árs gamall.

Það er því mikil örvænting hjá honum að ná áttunda heimsmeistaratitlinum og geta þannig verið skráður í spjöld sögunnar sem sigursælasti ökumaður allra tíma í Formúlu 1. Hamilton ítrekar þó að hann beri fullt traust til Vasseur til að færa honum langþráða áttunda heimsmeistaratitilinn.

Samkvæmt Sky Sports var Hamilton ánægður með umfjöllunina um Vesseur því það eina sem hún hefur gert er að ýta liðinu þéttar saman.

„Við höfum nú þegar sameinast. Það eru utanaðkomandi aðilar sem reyna að draga okkur niður og fjalla neikvætt um okkur og brjóta andann í liðinu. Það er ekki að takast hjá þeim,“ sagði Hamilton þegar hann var spurður út í umfjöllun í kringum Ferrari-liðið.

„Fred er leiðtoginn okkar og hann er að standa sig frábærlega. Ef þú horfir á söguna og sérð hve margir leiðtogar hafa farið eftir stuttan tíma og mér finnst liðið vera á betri stað núna heldur en áður, en í enda dags þá er þetta ekki starf eins manns.“

Hamilton er hluti af liðinu og veit hverjir veikleikarnir eru en það er flókið og kostnaðarsamt að laga þá. Hann verður því að vera alveg viss þegar hann biður um breytingar í liðinu.

„Ég er hluti af liðinu svo ég veit hvað er að gerast, hvernig það er uppsett og hverjir veikleikarnir eru. Ég ætla ekki að tala um þá en ég mun reyna að vinna með fólkinu sem stjórnar til þess að gera breytingar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×