Formúla 1

Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt

Andri Broddason skrifar
Toto Wolff segist ekki vera að forgangsraða Kimi Antonelli frekar en liðsfélaga hans George Russell.
Toto Wolff segist ekki vera að forgangsraða Kimi Antonelli frekar en liðsfélaga hans George Russell. Vísir/Getty

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, lætur sér fátt um finnast þó að sófasérfræðingar segi að hann hafi rangt fyrir sér. Liðið ákvað að gefa Kimi Antonelli ný dekk en ekki liðsfélaga hans, George Russell.

Breski ökumaðurinn var fremstur í ítalska kappakstrinum síðustu helgi þegar stafrænn öryggisbíll var kallaður út. Lið Mercedes ákvað að kalla Kimi Antonelli á þjónustusvæðið til að fá ný dekk en héldu Russell á hans gömlu dekkjum.

Nýju dekkin hjálpuðu Antonelli að sækja ótrúlegan sigur í sínu heimalandi á meðan Russell þurfti að sætta sig við annað sætið. Eftir keppnina er Antonelli með 66 stiga forskot á Russell í öðru sæti heimsmeistaramótsins og því um mikilvæg stig að ræða.

Toto Wolff er staðráðinn í því að þetta hafi verið rétt ákvörðun og sagði í viðtali við Sky Sports að hann væri ekki að hugsa um hvaða skoðanir aðrir höfðu.

„Auðvitað eru einhverjir sófasérfræðingar sem setja athugasemdir á netið eftir að hafa horft á einhvern annan segja eitthvað bull á netinu. Þeir segja að það hafi verið að refsa Russell en það er algjört kjaftæði.“

Fyrir tímabilið var George Russell talinn líklegastur til að vinna heimsmeistaramótið þar sem Mercedes var með hraðasta bílinn. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Kimi Antonelli, kom þó öllum á óvart og hefur keyrt óaðfinnanlega á þessu tímabili. Ítalinn ungi er því búinn að koma sér í stöðu til að fá oftar að njóta vafans í erfiðum ákvörðunum Mercedes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×