Sport

Kristján sigraði Bakgarðshlaupið

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Garpur I. Elísabetarson skrifa
Kristján Karl er sigurvegarinn.
Kristján Karl er sigurvegarinn. Vísir/Viktor Freyr

Kristján Karl Björnsson sigraði Bakgarðshlaupið í Heiðmörk með 39 hringi. Í öðru sæti var Ríkarður Árnason sem fór 38 hringi. Fylgst var með Bakgarðshlaupinu í beinni útsendingu á Vísi.

Bakgarðshlaupið gengur út á að ljúka 6,7 kílómetra hring á einni klukkustund. Sá sem hleypur flesta hringi og er eini sem klárar hlaupið stendur uppi sem sigurvegari. 

Það var tvísýnt um tíma hvort Ríkarður eða Kristján færu með sigur úr býtum. Í þriðja sæti var Íris Arna Ingólfsdóttir sem lauk keppni eftir 30 hringi.

Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic lýstu hlaupinu, ræddu við keppendur og rýndu í stöðuna með góðum gestum. Fylgst var með öllum vendingum í vaktinni hér neðst.

Þorleifur Þorleifsson á Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi en hann fór 62 hringi í október 2024.

 Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×