Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2026 08:21 Frá vinstri má sjá Macklemore, Ed Sheeran og Robert Kraft. Vísir/EPA Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum.
Macklemore sagði á miðvikudag að hann myndi gefa alla eina milljón dala sem hann átti að fá í tekjur fyrir þátttöku sína í Loop Tour Sheerans til sex palestínskra samtaka „til að færa umræðuna aftur þangað sem hún á heima: til palestínsku þjóðarinnar“. Það samsvarar tæpum 122 milljónum íslenskra króna. „Þetta er óréttlæti af mannavöldum og ég tel að það krefjist tafarlausra pólitískra breytinga,“ skrifaði hann á samfélagsmiðla. View this post on Instagram A post shared by BEN (@macklemore) Macklemore, sem heitir réttu nafni Benjamin Haggerty, kallaði eftir „frjálsri Palestínu“ og sýndi myndir af eyðileggingunni á Gasa á tvennum tónleikum Sheerans í New Jersey fyrr í þessum mánuði. Hann var í kjölfarið tekinn af dagskrá Sheerans á mánudag, aðeins nokkrum dögum áður en tónleikaferðin átti að halda áfram í Fíladelfíu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, á laugardag. Fram kemur í frétt BBC um málið að Sheeran, sem kom fram í brúðkaupi Krafts árið 2022, hafi sagt á þriðjudag að hann bæri ekki ábyrgð á því að Macklemore hefði verið fjarlægður sem upphitunaratriði í tónleikaferðinni. Kraft staðfesti á mánudag að hann hefði tekið ákvörðun um að banna Macklemore á Gillette Stadium þar sem tónleikastaður hans myndi ekki „veita hatursorðræðu vettvang“. Hann sakaði Macklemore um víðtæka hatursorðræðu gegn gyðingum sem Macklemore hefur þvertekið fyrir. Kraft sagði Macklemore einnig „aðeins að deila völdum upplýsingum og hundsa gjörðir Hamas“. View this post on Instagram A post shared by Gillette Stadium (@gillettestadium) Öll önnur upphitunaratriði á tónleikaferð Sheerans um Bandaríkin hafa síðan hætt þátttöku í samstöðu með Macklemore. Það eru Finneas, bróðir poppstjörnunnar Billie Eilish, írski söngvarinn og lagahöfundurinn Aaron Rowe og danska hljómsveitin Lukas Graham, auk írsku þjóðlagasveitarinnar Beoga, sem hefur komið fram með Sheeran á sviði á hverju kvöldi. Í yfirlýsingu hafa þau lýst því yfir að brottvísun hans af tónleikaferðalaginu hafi haft „kælandi áhrif á tjáningarfrelsið“. Í viðtali við BBC segir Kraft frá því að Sheeran hafi, eftir áskorun Macklemore, beðið hann um að leggja fram sömu upphæð og hann sjálfur, tvær milljónir dala, til neyðaraðstoðar á svæðinu. „Fyrr í dag, áður en Macklemore skoraði á mig að leggja fram sömu upphæð og hann, hringdi Ed í mig og bað mig um að skuldbinda mig til að leggja fram tvær milljónir dala sem mótframlag við hans framlag til aðstoðar á svæðinu vegna þessarar mannúðarkrísu. Ed hyggst nú hafa samband við aðra eigendur tónleikastaða og markmið okkar er að halda áfram að vinna saman að því að byggja brýr,“ sagði Kraft í yfirlýsingu vegna málsins. Ekki staðfest Í frétt BBC segir að hann hafi hvorki staðfest að hann ætlaði að leggja fram slíkt fjármagn né hvernig því yrði varið. Þá segir að það sé í fyrsta sinn sem kemur fram að Sheeran hafi gefið slíkt fjármagn. Ummæli Krafts komu fram í annarri yfirlýsingu hans í þessari viku vegna deilunnar um tónleikaferð Sheerans um Bandaríkin en á mánudag hafði hann staðfest að það hefði verið hann sem krafðist þess að Macklemore yrði ekki hluti af upphitunaratriði fyrir breska Sheeran á tónleikum á Gillette Stadium, leikvanginum hans nærri Boston.
Palestína Tónlist Ísrael Bandaríkin Bretland Írland Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp „Erum bara vinir“ Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Fleiri fréttir Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“