Lífið

Níu­tíu og einn meistari út­skrifaðist

Agnar Már Másson skrifar
Útskriftarnemendur voru 98, þar af 91 sem útskrifaðist með meistaragráðu.
Útskriftarnemendur voru 98, þar af 91 sem útskrifaðist með meistaragráðu.

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram í Silfurbergi í Hörpu í kvöld. Úskriftarnemendur voru 98 talsins, þar af útskrifaðist 91 nemandi með meistaragráðu, fjórir með doktorsgráðu, tveir með BSc-gráðu og einn með diplómu.

Frá þessu er greitn í tilkynnigu frá skólanu. Þar segir að Ragnhildur Helgadóttir, rektor Haskólans í Reykjavík, hafi í ávarpi sínu fjallað um að jafnvægið milli þátta eins og að vekja forvitni, aðferða til að komast að vísindalegum niðurstöðum, gagnrýnnar hugsunar, færni í samvinnu, þekkingar á námssviði og þjálfunar fyrir atvinnulífið væri ekki sjálfgefið og ekki endilega það sama milli námsstiga.  Jafnvægið væri í sífelldri endurskoðun, eftir breytingum í þjóðfélaginu.

Fjölmennt var við brautskráningarathöfn í Hörpu.Aðsend

„Eitt af því sem þróun gervigreindar hefur gert er að fleiri hafa myndað sér, og þróað, -skoðanir sínar varðandi nákvæmlega þetta jafnvægi. Við finnum fyrir miklu minni óþolinmæði gagnvart þeim þáttum námsleiða sem snúa að gagnrýninni hugsun og færni í samvinnu heldur en fyrir bara tveimur árum. Við erum nefnilega öll, í vinnunni og í hversdeginum, að reyna að átta okkur á því hvert þróunin stefnir. Að sama skapi eru vinnuveitendur nú, margir, minna uppteknir af þekkingu sem er komin inn í kollinn á fólki heldur en því að fólk kunni að finna þekkingu og tileinka sér hana,“ er heft eftir Ragnhildi í tilkynningu skólans.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor Haskólans í Reykjavík.Aðsend
Um tónlistarflutning sáu þau Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar.Aðsend

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema og talaði um hvað það væri mikilvægt að elta drauma sína og að leið fólks að háskólanámi væri ekki alltaf eins.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor Haskólans í Reykjavík, flutti ávarp.

„Þessi skóli hefur veitt mér tækifæri sem aðrir voru ekki tilbúnir að veita mér, þannig að ég gæti fylgt því eftir að skapa farsæla framtíð fyrir okkur mæðgur. Án þess tækifæris sem skólinn veitti mér stæði ég ekki hér í dag. Námið hefur kennt mér að halda alltaf áfram, læra meira og þróast meðfram þekkingu. Nám getur opnað dyr sem standa þér ekki endilega opnar í því félagslega umhverfi sem þú fæðist í,“ er haft upp úr ræðu Hjördísar Líneyjar.

„Gjörðu svo vel og til hamingju!“

Um tónlistarflutning sáu þau Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar. Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta stýrði athöfn.

Kampakát eftir útskrift!

Duck face!

Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema.

Gott að ná einni með varðskipið í bakgrunni.Aðsend






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.