Lífið

„Erum bara vinir“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Brynjar Steinn og Tómas Bergvin eru bara vinir að sögn Binna.
Brynjar Steinn og Tómas Bergvin eru bara vinir að sögn Binna. Instagram

Æði-stjarnan og áhrifavaldurinn Brynjar Steinn, betur þekktur sem Binni Glee, hefur eytt miklum tíma undanfarið með ungum manni að nafni Tómas Bergvin Reynisson Zoëga.

Strákarnir hafa verið duglegir að deila skemmtilegum stundum saman á Instagram, þar á meðal farið út að borða, farið saman á góðgerðarkvöld Blue Car Rental og tjúttað saman á Hrekkjavökunni. Fjölmargir hafa velt því fyrir sér hvort þetta sé nýr kærasti Binna, þar á meðal blaðamaður. 

Vel fór á með þeim Binna og Tómasi á góðgerðarkvöldi Blue Car.Instagram

Því neitar Binni hinsvegar.

„Við erum bara vinir,“ svaraði hann kíminn þegar spurningin var borin fram en segist jafnframt meðvitaður um að margir séu að velta þessu fyrir sér. 

Binni klæddi sig upp sem Kattarkonan á laugardaginn.Instagram

Binni fagnar Hrekkjavökunni alltaf með stæl og var í tveimur búningum í ár. Annars vegar klæddi hann sig upp sem klappstýran Quinn úr þáttunum Glee, en fáir hafa verið jafn spenntir og Binni fyrir endurkomu söngþáttanna vinsælu.

Á laugardagskvöld klæddi Binni sig svo upp sem kattarkonan og Tómas var epíska þernan Magenta úr költmyndinni The Rocky Horror Picture Show. Strákarnir halda ótrauðir áfram að njóta lífsins saman, sem vinir. 

Tómas og Binni í stuði á Hrekkjavöku ásamt vinkonu þeirra.Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.