„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Árni Sæberg skrifar 15. september 2026 11:43 Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra. Vísir/Anton Brink Innviðaráðherra segir boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair alvarlegt mál og að algjört grundvallaratriði sé að deiluaðilar finni lausn á deilunni áður en til verkfalls kemur. Þó hafi möguleikinn á því að setja lög á verkfall flugvirkja ekki komið til umræðu.
Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) tilkynnti Icelandair í gær að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. Þeir hafa staðið í kjaradeilu við félagið undanfarna mánuði. Grundvallaratriði að samningsaðilar nái saman Birgir Olgeirsson fréttamaður ræddi málið við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Þetta er alltaf alvarlegt mál upp á flug til og frá landinu. Ég vona bara að samningsaðilar leysi málið, það er tími til stefnu.“ Árið 2010 samþykkti Alþingi frumvarp um lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair en þáverandi samgönguráðherra sagði að ekki væri rými í samfélaginu fyrir átök og deilur af því tagi. Hvert er þitt mat á stöðunni í samfélaginu í dag með tilliti til þess. Ert þú að upplifa það? „Þetta er í höndum samningsaðila núna og þeir verða að halda áfram og finna lausn á þessari deilu. Það er grundvallaratriði, algjört grundvallaratriði. En við höfum ekki rætt neitt slíkt, að setja lög á verkfallið. Það hefur ekki komið til umræðu.“ Miklir hagsmunir undir og ábyrgð mikil Líkt og Vísir fjallaði um í gær gæti verkfall flugvirkja kostað allt að milljarð króna á dag. „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi og ábyrgð samningsaðila er mjög, mjög mikil. Þeir verða að nýta tímann vel fram að boðuðu verkfalli. Það er grundvallaratriði.“ Þannig að þið stígið ekkert inn í viðræður eins og er? „Ég ætla ekki að fara að svara vangaveltum um slíkt, enda hefur það ekki verið rætt og ekki komið að þeim tímapunkti.“
Flug Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Icelandair Ferðaþjónusta Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira